Handbolti

Þjóðverjar hafa ekki áhyggjur af dómgæslunni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Samsæriskenningar hafa verið á lofti um að dómarar eigi að sjá til þess að landslið Katar nái eins langt og mögulegt er hér á HM í handbolta.

Dómgæslan í leik Katar og Austurríkis fékk mikla athygli enda þótti mörgum verulega hallað á lærisveina Patreks Jóhannessonar í austurríska liðinu.

„Manni hefur verið kennt frá því í æsku að sækja alltaf að markinu. Svo þegar maður sótti að markinu í kvöld var dæmt á mann í annað hvert skiptið. Þá var erfitt að halda ró sinni og spila handbolta,“ sagði Viktor Szilagyi, fyririliði austurríska liðsins, í samtali við Arnar Björnsson eftir leikinn.

Sjá einnig: Patrekur vildi ekkert tjá sig um dómgæsluna

Þetta sama kvöld var Króatía að keppa við Brasilíu í 16-liða úrslitum keppninnar en dómarar þess leiks voru frá Katar. Króatískir blaðamenn hér í Doha veltu því fyrir sér hvort að dómarar landanna, Króatíu og Katar, hafa haft samstarf um að dæma þessum tveimur liðum í hag.

Þeir þýsku blaðamenn sem ofanritaður hefur rætt við í aðdraganda leiks Þýskalands og Katar í 8-liða úrslitum hafa ekki áhyggjur af dómgæslunni. Dómarapar frá Makedóníu, Gjorgi Nachevski og Slave Nikolov, hefur verið sett á leikinn en þeir segja það engu máli breyta.

Sjá einnig: HM-kvöld: Patrekur og austurrísku leikmennirnir flautaðir út úr HM

„Við höfum trú á því að Þýskaland vinni miðað við spilamennsku liðsins í síðustu leikjum. Þetta verður þó erfiður leikur,“ sagði blaðamaður að nafni Martin í samtali við Vísi.


Tengdar fréttir

Patrekur og félagar úr leik

Heimamenn í Katar eru komnir áfram í 8-liða úrslit á HM eftir tveggja marka sigur, 29-27, á lærisveinum Patreks Jóhannessonar í austurríska landsliðinu.

Af hverju er Patrekur alltaf með "teipið“ á fingrunum?

Patrekur Jóhannesson var alls ekkert spældur yfir því að Austurríki náði ekki að sigra Makedóníu í síðasta leiknum í B-riðlinum. Makedónía vann 36-30. Vendipunkturinn í leiknum var þegar leikstjórnandinn Vytautas Ziura fékk beint rautt spjald þegar 5 mínútur voru búnar af seinni hálfleik. Þá var staðan 19-18, Austurríki í vil. Makedóníumenn náðu fimm marka forystu á næstu 5 mínútum og unnu öruggan sigur. Makedónía mætir Slóvenum í 16 liða úrslitum en Austurríki keppir við Katar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×