Erlent

Þjóðverjar búast við 300.000 flóttamönnum það sem eftir lifir árs

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Flóttamenn leika sér með bolta nærri lestarstöð í borginni München í Þýskalandi.
Flóttamenn leika sér með bolta nærri lestarstöð í borginni München í Þýskalandi. Nordicphotos/AFP
Þjóðverjar búast við því að um 300.000 flóttamenn eigi eftir að koma til landsins það sem eftir lifir árs. Þetta sagði Frank-Jürgen Weise, yfirmaður Flóttamannastofnunar Þýskalands, í viðtali við Bild am Sonntag í gær. Weise sagði einnig að afar erfitt yrði að taka á móti fleiri flóttamönnum en 300.000. Þó sagðist hann hafa trú á því að mat hans myndi reynast rétt.

Rúmlega milljón flóttamenn frá Mið-Austurlöndum, Afganistan og Norður-Afríku komu til Þýskalands í fyrra. Þá hefur innanríkisráðuneytið sagt að um 390.000 hafi sótt um hæli á fyrstu sex mánuðum ársins. Ekki er víst hversu margir þeirra komu til landsins árið 2015.

„Við munum reyna að útvega eins mörgum flóttamönnum og við getum atvinnu,“ sagði Weise. Innlimun þeirra í samfélagið myndi þó taka langan tíma og kosta mikla fjármuni.

Mótmælendur með borða sem á stendur „Lokum landamærunum! Björgum mannslífum!“nordicphotos/AFP
Þjóðernishyggja vinsælli

Stuðningur við stjórnmálahreyfingar sem andsnúnar eru innflytjendum hefur aukist jafnt og þétt undanfarin misseri. Kosið verður til þings á næsta ári og samkvæmt nýjustu skoðanakönnun Emnid mælist þjóðernishyggjuflokkurinn Alternative für Deutschland nú með tólf prósenta fylgi. Kristilegir demókratar mælast með 35 prósent og jafnaðarmenn með 23 prósent.

Á laugardag klifu meðlimir þjóðernishyggjuhreyfingarinnar Ident­itäre Bewegung Brandenborgarhliðið og hengdu á það borða sem á stóð „Öruggari landamæri – öruggari framtíð“. Dreifði hreyfingin einnig miðum þar sem varað var við því að Þjóðverjar væru að verða að minnihlutahóp í eigin landi og hvöttu til aðgerða gegn íslamsvæðingu landsins.

Þá þykir rúmlega helmingi Þjóðverja innflytjendastefna ríkisstjórnarinnar slæm samkvæmt könnun sem birtist fyrr í mánuðinum.

Gabriel með fingurinn á lofti.Vísir/AFP
Sýndi nýnasistum fingurinn

Sigmar Gabriel, vara­kanslari og fjármálaráðherra Þýskalands, varði í gær gjörðir sínar frá því fyrr í mánuðinum þegar hann sýndi hópi nýnasista sem mótmæltu stefnu hans puttann. „Mín einu mistök voru þau að ég notaði ekki báðar hendur,“ sagði Gabriel.

Nýnasistarnir voru komnir til Salzgitter í Saxlandi til að mótmæla innflytjendastefnu ríkisstjórnar Kristilegra demókrata, flokks kanslarans Angelu Merkel, og Jafnaðarmannaflokksins, flokks Gabriels.

Sögðu þeir föður Gabriels hafa elskað land sitt en Gabriel sjálfur væri aftur á móti að eyðileggja það. Faðir hans, Walter, var nasisti og neitaði því að helförin hefði átt sér stað allt þar til hann lést árið 2012.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×