Menning

Þjóðlist bæði sunnan heiða og norðan

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Bára og Chris eiga ýmis sérkennileg hljóðfæri sem þau leika á undir söng sínum.
Bára og Chris eiga ýmis sérkennileg hljóðfæri sem þau leika á undir söng sínum. Fréttablaðið/GVA
Það er nóg að gera þessa dagana hjá dúóinu Funa sem samanstendur af þeim Báru Grímsdóttur kvæðakonu og Chris Foster þjóðlagasöngvara og gítarista.

Svo byrjað sé á deginum í dag þá verða þau á þjóðlagatónleikum í Norræna húsinu kvöld sem hefjast klukkan 20, ásamt norsku tónlistarkonunum Lindu Gytri frá Oldedalen sem státar af titlinum Noregsmeistari í harmonikuleik og Unni Lövlid sem er rödd vesturstrandar Noregs og þykir með betri þjóðlagatónlistarkonum.



„Þetta eru í raun þrískiptir tónleikar. Við skiptumst á að koma þar fram, við Chris saman og þær Linda Gytri og Unni Lövlid hvor í sínu lagi,“ lýsir Bára.

„Chris verður með langspilið og ég með borðhörpu sem heitir Kantele og Chris spilar líka á gítar.

Efnið er blanda af gömlum íslenskum lögum sem hafa fundist í handritum, og enskum kvæðalögum. Ég ætla til dæmis að syngja enska ballöðu við langspilið. Lagið er þjóðlag og textinn sannsögulegur.“



Svo er það stóra þjóðlistahátíðin á Akureyri sem hefst á morgun og stendur fram á laugardag. Þar verður bæði þjóðlagatónlist og þjóðdansar á dagskrá í meðferð fjölda listamanna frá Norðurlöndunum og nokkurra frá Írlandi og Skotlandi.

Meðal þeirra íslensku eru Bára og Chris sem verða með tónleika á Kaffi Akureyri á föstudaginn, 22. ágúst.

Þar flytja þau útsetningu á lagi sem Bára samdi við ljóð eldklerksins Jóns Steingrímsonar um Móðuharðindin.

„Lagið heitir Angurvaka og við leikum undir á tvö langspil,“ lýsir Bára og bætir því að gárungarnir segi að eldklerkurinn sjálfur hafi leikið undurvel á langspil.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×