Lífið

Þjóðhátíðarlag FM95BLÖ slær í gegn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stákarnir fara á kostum í myndbandinu.
Stákarnir fara á kostum í myndbandinu.
„Við erum bara í skýjunum með þetta," segir Auðunn Blöndal, sjónvarps- og útvarpsmaðurinn.

Á fyrsta sólahringnum var horft á Þjóðhátíðarlag FM95BLÖ 55.000 sinnum og má segja að viðtökurnar séu lygilega.

Lagið heitir Ég fer á Þjóðhátíð en þeir höfðum lofað hlustendum þáttarins lagi og tónlistarmyndbandi.

Sjá einnig: Frumsýning á Þjóðhátíðarlagi FM95BLÖ

FM95BLÖ snýr aftur úr sumarfríi á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og munu senda fyrsta þáttinn eftir frí út í beinni frá Eyjum næstkomandi föstudag en síðar sama kvöld verða þeir á stóra sviðinu í Herjólfsdal þar sem þeir skemmta þjóðhátíðargestum.

Það var framleiðsluteymið IRIS sem sá um gerð myndbandsins og StopWaitGo-gengið sem sá um útsetningu lagsins. Strákarnir í FM95BLÖ gerðu texta lagsins.

Hér að neðan má hlusta og horfa á lagið. Niðurhala má laginu frítt með því að smella hér






Fleiri fréttir

Sjá meira


×