Skoðun

Þjóðarsáttin 1990 – þjóðarósættið 2015

Bolli Héðinsson skrifar
Ef það er eitthvað eitt sem skiptir máli við gerð þjóðarsáttar þá er það traust. Traust milli launþegahreyfingar og vinnuveitenda, traust á ríkisstjórn. Orð og efndir núverandi ríkisstjórnar frá því hún var mynduð hafa ekki beinlínis verið til þess fallin að auka á trúnað og traust. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa með grímulausari hætti en áður hefur sést, gengið á bak orða sinna og er þjóðin þó ýmsu vön. Hvað sem mönnum kann að finnast t.d. um aðild að ESB eða framhald aðildarviðræðna þá dylst engum að jafn afdráttarlaus svik á kosningaloforðum hafa ekki sést hér á landi áður. Slíkt dregur úr trúverðugleika og setur tóninn um önnur mál sem mikilvægt er að ríkisstjórn hafi forystu um og þjóðin treysti. Orðræðan sem þjóðin hefur mátt búa við af hálfu ríkisstjórnarinnar er síðan ekki beinlínis til þess fallin að stuðla að sátt.

Forsendur sáttar

Hverjar skyldu hafa verið forsendur þjóðarsáttarinnar 1990? Það var hægt að treysta því að ekki væri verið að hygla einum umfram annan, hvorki vinnuveitendur, ríkið eða aðrir. Ekki væri verið í feluleik með launahækkanir eða ríkisstjórn að gera vel við vildarvini sína með útdeilingu þjóðareigna.

Eftir vel heppnuð skemmdarverk á lokametrum síðustu ríkisstjórnar (m.a. við að uppfylla loforð Framsóknarflokksins um nýja stjórnarskrá) þá létu núverandi stjórnarflokkar kné fylgja kviði eftir mikinn kosningasigur sinn og hafa síðan reynt að nota þingstyrkinn til hins ýtrasta til þess að reyna snúa klukkunni við og hverfa aftur til áranna þegar þeir réðu ríkjum fyrir 2007. Einnig skópu núverandi stjórnarflokkar fordæmin um málþófið í þingstörfum og hvernig halda eigi málum í gíslingu sem við sjáum nú endurtekið á „hinu háa“ Alþingi og er síst til fyrirmyndar.

Helsta vandamálið að mati stjórnarinnar er að þjóðin áttar sig ekki á að hér er að þeirra sögn allt í himnalagi. Þá eiga e.t.v. best við orð Bertholds Brecht frá 1953 eftir uppreisnartilraunina í Austur-Þýskalandi, þegar hann ráðlagði ráðamönnum þar að fá sér nýja þjóð. Þetta gæti einnig verið ráð til íslensku ríkisstjórnarinnar 2015.

Höfundur var efnahagsráðgjafi tveggja ríkisstjórna Steingríms Hermannssonar, 1986-1987 og 1990-1991.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×