Fótbolti

Þjálfarinn út í rútu þegar liðið datt út úr bikarnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Roger Schmidt.
Roger Schmidt. Vísir/Getty
Roger Schmidt mátti ekki koma nálægt leik sinna manna í Bayer Leverkusen í gær þegar liðið datt óvænt út úr þýsku bikarkeppninni.

Bayer Leverkusen tapaði þá 4-3 í vítakeppni á móti þriðju deildarliðinu Sportfreunde Lotte en þetta var önnur umferð þýska bikarsins.

Roger Schmidt þurfti að horfa á leikinn á spjaldtölvu út í rútu liðsins því hinn 49 ára gamli þjálfari tók út fyrsta leikinn í tveggja leikja banni.

Roger Schmidt var dæmdur í bann fyrir að öskra ókvæðisorð að þjálfara Hoffenheim í leik liðanna í þýsku deildinni á laugardaginn var.  Hann var í raun að klára fimm leikja bann frá því í fyrra en tveir síðustu leikirnir voru skilorðsbundnir.

Eftir læti Roger Schmidt á hliðarlínunni um helgina var það ljóst að hann yrði að taka út síðustu tvo leikina.

Það dugði ekki Bayer Leverkusen að leikmenn Sportfreunde Lotte klikkuðu á tveimur fyrstu vítaspyrnum sínum í vítakeppninni.

Kevin Volland og Charles Aranguiz hjá Bayer Leverkusen klikkuðu báðir á sínum vítum og markvörðurinn Benedikt Fernandez var síðan hetjan þegar hann varði síðustu spyrnu Leverkusen frá Julian Baumgartlinger.

Þetta er búið að vera mikið bikarævintýri hjá Sportfreunde Lotte í vetur en liðið sló Werder Bremen út í fyrstu umferðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×