Sport

Þjálfarinn sáttur með sínar stúlkur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Íslensku stelpurnar fengu silfur í dag.
Íslensku stelpurnar fengu silfur í dag. Vísir/Andri Marinó
Bjarni Gíslason, einn þjálfara íslenska kvennalandsliðsins, sagði flest hafa gengið upp í úrslitunum á EM í hópfimleikum í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal í dag.

Íslensku stelpurnar stóðu sig með mikilli prýði en þurfu að sætta sig silfurverðlaun eftir að hafa unnið til gullverðlauna á síðustu tveimur mótum.

„Við fengum góða einkunn á öllum áhöldum, að okkur fannst. Frammistaða stelpnanna var mjög öflug og þetta var nákvæmlega eins og við plönuðum.

„Það gekk allt upp þannig séð, þótt það hafi verið vissir hnökrar hér og þar. En það skipti ekki það miklu máli,“ sagði Bjarni sem sagði íslenska liðið hafa verið að keppa við gríðarlega sterkt sænskt lið, sem fór heim með gullið.

„Við höfum alltaf keppt á móti þessum sterku sænsku liðum og gerðum það þegar við unnum gullið 2010 og 2012. Við höfum alltaf horft á sænska liðið sem mjög sterkan andstæðing. Þær áttu mjög góðan dag í dag og áttu sigurinn skilið,“ sagði Bjarni sem var ánægður með bætinguna frá forkeppninni á fimmtudaginn.

„Það var mikil bæting. Við löguðum nánast allt sem við ætluðum að laga og þær skiluðu þessu frábærlega,“ sagði þjálfarinn að lokum.


Tengdar fréttir

Finn ekki fyrir löppunum og held fyrir andlitið

"Þetta verður svakalega spennandi keppni,“segir Íris Mist Magnúsdóttir um einvígið á milli Íslands og Svíþjóðar í kvennaflokki á Evrópumótinu í hópfimleikum sem fer fram "Fimleikahöllinni“ í Laugardal í dag.

Glódís: Förum brosandi frá mótinu

Glódís Guðgeirsdóttir gat litið á björtu hliðarnar þrátt fyrir að Ísland hefði lent í 2. sæti á EM í hópfimleikum.

Þórdís: Nutum hverrar mínútu

Þórdís Ólafsdóttir, fyrirliði íslenska liðsins í blönduðum flokki, var nokkuð sátt með frammistöðu Íslands á lokadegi EM í hópfimleikum sem hefur staðið yfir í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal síðan á miðvikudaginn.

Sif: Við látum ekkert koma okkur úr jafnvægi

Íslenska kvennalandsliðið í hópfimleikum tryggði sér örugglega sæti í úrslitum EM í hópfimleikum í gær en liðið endaði í 2. sæti í undankeppninni.

Stúlkurnar fengu brons á EM

Unglingalandslið kvenna í hópfimleikum varði ekki Evrópumeistaratitilinn á heimavelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×