Fótbolti

Þjálfari velska landsliðsins varar sína menn við

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gareth Bale og félagar eru nú í svipaðri stöðu og íslensku strákarnir.
Gareth Bale og félagar eru nú í svipaðri stöðu og íslensku strákarnir. Vísir/Getty
Wales náði frábærum árangri á sínu fyrsta Evrópumóti með því að komast alla leið í undanúrslitin á EM í Frakklandi.

Wales og Ísland voru spútniklið mótsins og nýliðarnir unnu hug og hjörtu margra með árangrinum í frumraun sinni. Wales hafði ekki verið með á stórmóti síðan á HM 1958 og Ísland var með í fyrsta sinn á stórmóti karlalandsliða.

Það er hinsvegar stutt í næstu leiki því undankeppni HM 2018 hefst strax í haust. Eins og hjá íslensku landsliðsstrákunum er nauðsynlegt að velsku landsliðsmennirnir haldi dampi ætli liðið að byggja ofan á árangur sinn í Frakklandi og tryggja sér farseðil til Rússlands.

Chris Coleman, þjálfari Wales, er strax farinn að huga að þeirri keppni og hefur þegar gefið út varnaðarorð. Hann segir að leikmenn sínir verði að forðast það að falla í þá gryfju að fara að líða of vel eftir frábæran árangur síðustu vikna.

„Það segir mjög mikið um mína leikmann að við náðum þessum árangri. Ég hef sagt það í gegnum allt mótið að það sé ekki nóg að hafa hæfileikana því þú þarf einnig hungur og þrá," sagði Chris Coleman.

„Við erum á hættulegum slóðum eins og er því nú skiptir öllu máli hvað við gerum næst. Við verðum að fara og tryggja okkur sæti á heimsmeistaramótinu núna og þá þurfum við að ná öðrum af tveimur efstu sætunum í erfiðum riðli," sagði Coleman.

Wales er í riðli með Austurríki, Írlandi, Serbíu, Moldóvíu og Georgíu. Sigurvegari riðilsins fer beint á HM en liðið í örðu sæti fer í umspil um laust sæti.

Íslenski riðilinn er líka mjög krefjandi en þar eru Króatía, Tyrkland, Úkraína, Finnland og Kósóvó. Orð Chris Coleman ættu því að eiga hljómgrunn hjá íslensku leikmönnunum alveg eins og þeim velsku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×