Fótbolti

Þjálfari Nígeríu: Leikurinn við Ísland sögulegur

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Þjóðverjinn Rohr tók við liði Nígeríu árið 2016
Þjóðverjinn Rohr tók við liði Nígeríu árið 2016 Vísir/Getty
Landsliðsþjálfari Nígeríu segir að leikur Íslands og Nígeríu gæti orðið einn sá stærsti í sögu HM.

„Í dag er Ísland lið sem veit hvernig á að spila fótbolta en er mjög líkamlega sterkt,“ sagði landsliðsþjálfarinn, Gernot Rohr í nígerskum fjölmiðlum.

„Leikurinn í Volgograd verður mjög erfiður. Stuðningsmennirnir munu koma í stórum skammti og hvetja liðið áfram.“

Rohr sagði íslensku stuðningsmennina vera þá bestu í fótboltaheiminum í dag.

„Þessi leikur á sér engan líkann í sögu Heimsmeistaramótnsins, sem kryddar viðureignina upp.“

„Það er skemmtilegt að sjá að liðin í riðlinum þekkja hvort annað mjög vel í pörum. Króatar og Íslendingar voru saman í undanriðli, og Nígería og Argentína hafa mæst í lokakeppninni fimm sinnum,“ sagði Gernot Rohr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×