Fótbolti

Þjálfari Kósóvó: Meiri líkur á íslenskum sigri

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Fyrirliðinn Samir Ujkani og þjálfarinn Albert Bunjaki á fundinum í dag.
Fyrirliðinn Samir Ujkani og þjálfarinn Albert Bunjaki á fundinum í dag. Vísir/E. Stefán
Albert Bunjaki, landsliðsþjálfari Kósóvó, hrósaði íslenska landsliðinu í hástert á blaðamannafundi sínum fyrir leik liðanna í undankeppni HM 2018 í Shkoder í Albaníu á morgun.

„Við vitum að við erum að fara að spila við lið sem komst í 8-liða úrslit á EM í Frakklandi,“ sagði Bunjaki. „Við eigum því á liði sem er ekki líkt öðrum sem við höfum spilað við hingað til.“

Kósóvó er með eitt stig eftir fyrstu fjóra leiki sína í undankeppni HM, sem er fyrsta alþjóðlega keppni sem liðið tekur þátt í. Kósóvó náði jafntefli gegn Finnlandi en tapaði fyrir Tyrklandi, Króatíu og Úkraínu.

„Við þekkjum íslenska liðið vel. Það þarf ekki að kynna það sérstaklega enda þekkja allir velgengni þess á síðasta ári. Þeir fóru mjög hátt þá.“

„Þetta verður áhugaverður leikur enda að spila við Ísland í fyrsta sinn. Þetta verður ný reynsla fyrir okkur alla og við lærum eitthvað nýtt á hverjum degi.“

Hann segir að Ísland sé sigurstranglegri aðilinn í leiknum á morgun. „Miðað við þá reynslu og stöðugleika sem liðið hefur sýnt þá er það svo. Þetta er líka afar mikilvægur leikur fyrir annað sætið í riðlinum en við höfum séð að okkar lið hefur bætt sig með hverjum leik.“

Bunjaki vonast auðvitað til þess að hans menn nái góðum úrslitum á morgun. „Það er ekki langt í að við komum á óvart. Ég get sagt að við stefnum á jafntefli og jafnvel sigur. En ég býst líka að lukkan verði á okkar bandi en hana hefur skort í síðustu leikjum.“

Hann segir að landsliðsþjálfarar Íslands séu afar hógværir menn og tali af virðingu um andstæðinga sína. „Ísland er fyrirmynd fyrir svokölluð smærri lið í Evrópu. Miðað við frammistöðu Íslands á EM í sumar þá standa þeir okkur framar. En það er alltaf hægt að koma á óvart í fótbolta og við óskum þess að okkur takist það á morgun.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×