Fótbolti

Þjálfari Hólmfríðar vill stilla upp litlum myndavélum á öllum leikjum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hólmfríður og félagar fögnuðu sigrinum um helgina vel.
Hólmfríður og félagar fögnuðu sigrinum um helgina vel. Mynd/Aðsend
„Þegar það er sjónvarpsleikur er lágmark að skora fjögur mörk,“ segir Hólmfríður Magnúsdóttir eldhress. Landsliðskonan skoraði fjögur mörk og lagði upp eitt í 5-1 sigri Avaldsnes á Vålerenga í undanúrslitum norska bikarsins um helgina.

Hólmfríður skoraði fjögur mörk í 5-0 sigri á Kolbotn fyrir tveimur vikum en leikurinn átti það sameiginlegt með leiknum um helgina að hann var sýndur í beinni sjónvarpsútsendingu.

„Þjálfarinn var að grínast með að setja upp litlar myndavélar í kringum vellina á öllum leikjum okkar svo ég haldi áfram að skora,“ segir Hólmfríður og hlær. Hún viðurkennir þó að eiga auðveldara með að gíra sig upp fyrir sjónvarpsleiki þar sem hún veit að margir eru að fylgjast með.

Hólmfríður spilaði á vinstri kantinum í leiknum en segist svolítið hafa verið látin flakka kantanna á milli undanfarið. Hún kann betur við sig á vinstri kantinum enda hafi það verið hennar styrkleiki að koma af kantinum og skjóta á markið með hægri fæti.

„Ég spila samt þar sem ég er beðin um að spila.“

Hólmfríður og Þórunn Helga Jónsdóttir leika með Avaldsnes líkt og Guðbjörg Gunnarsdóttir og Mist Edvardsdóttir.Mynd/Instagram
Eftir erfiða byrjun á leiktíðinni hefur Avaldsnes bætt leik sinn til muna eftir hléið vegna Evrópumótsins í sumar. Munar þar miklu um fjölmarga erlenda leikmenn sem fengnir voru til félagsins í hléinu. Áströlsk landsliðskona komst til að mynda ekki í leikmannahópinn og er nú farin heim.

„Það er gaman að hafa samkeppni og það heldur manni á tánum. Ég er keppnismanneskja og það verður að taka því ef maður lendir í mótlæti. Þá þarf að spýta í lófana. Þannig er það hjá Avaldsnes og ég kann vel við það.“

Íslendingaliðið mætir Stabæk í úrslitaleik á Ullevål í Ósló þann 23. nóvember. Um mikla bikarhelgi er að ræða þar sem kvennaleikurinn fer fram á laugardegi og karlaleikurinn á sunnudegi. Stabæk hefur unnið bikarinn undanfarin tvö ár og hafnaði í öðru sæti deildarinnar. Leikurinn verður afar erfiður að sögn Hólmfríðar.

„Það er samt skemmtilegast að spila stóru leikina og hann verður í beinni. Þá er pressa á mér að skora fjögur mörk,“ segir kantmaðurinn og hlær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×