Fótbolti

Þjálfari Halldórs Orra hafnaði Celtic

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ronny Deila tókst að láta slá sig tvisvar úr Meistaradeildinni í einni forkeppni.
Ronny Deila tókst að láta slá sig tvisvar úr Meistaradeildinni í einni forkeppni. vísir/getty
Fáir menn eru óvinsælli hjá stórum hluta Glasgow-borgar en Norðmaðurinn RonnyDeila, knattspyrnustjóri Celtic.

Skoska liðinu tókst að láta slá sig aftur úr Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi þegar það tapaði fyrir Maribor frá Slóveníu, 1-0, á heimavelli, en fyrri leiknum lauk með 1-1 jafntefli.

Celtic var í raun hent úr keppninni af pólska stórliðinu Legia Varsjá í þriðju umferð forkeppninnar, en Legia vann einvígi liðanna sannfærandi, 6-1. Celtic slapp þó með skrekkinn því Legia var fellt úr keppninni þar sem það spilaði á leikmanni sem var í banni.

„Það er aðeins eitt sem hægt er að segja: Við vorum ekki nógu góðir og áttum ekki skilið að fara í Meistaradeildina,“ sagði Ronny Deila hreinskilinn eftir leik.

Þjálfari og leikmenn Maribor fagna við lokaflautið í gær, en Deila er íbygginn á svip.vísir/getty
Deila, sem gerði Strömsgodset að norskum meisturum síðasta haust, tók við Celtic í sumar eftir að Neil Lennon sagði starfi sínu lausu. Hann var þó ekki fyrsti kostur Celtic og er nú sagður valtur í sessi eftir þetta klúður í Meistaradeildinni.

Celtic reyndi fyrst að RoyKeane sem hafnaði starfinu og gerðist síðar aðstoðarþjálfari Aston Villa, en nú hefur HenrikLarson, sænska goðsögnin sem spilaði með Celtic við góðan orðstír, staðfest að honum var borðið starfið.

Skoskir miðlar fullyrtu þetta í sumar, en Larson neitaði þeim fréttum ávallt. Hann þjálfar sænska úrvalsdeildarliðið Falkenbergs FF þar sem Stjörnumaðurinn HalldórOrriBjörnsson spilar, en nú hefur hann loks staðfest að honum bauðst starfið.

„Já, ég hafnaði Celtic-starfinu í sumar. Ég hugsaði mig um, en á endanum ákvað ég að vera áfram hjá Falkenbergs,“ sagði Henrik Larson við The Sun.

Larson er nú á ný orðaður við starfið í skoskum miðlum í morgun, en margir stuðningsmenn Celtic vilja losna við Deila og hafa boðað til mótmæla fyrir utan völl félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×