Sport

Þjálfari Gunnars: Verðum að vinna þennan bardaga

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Írinn John Kavanagh, þjálfari Gunnars Nelson, naut þess að koma til Íslands á dögunum en hann var þá að undirbúa Gunnar Nelson fyrir bardagann gegn Albert Tumenov um helgina.

„Það er allt of langt síðan ég kom síðast til Íslands. Það eru komin rúm tvö ár síðan núna. Það er talsvert þægilegra að koma hingað núna enda beint flug frá Dublin,“ segir Írinn geðþekki er íþróttadeild hitti hann á dögunum.

„Ísland er nánast eins og mitt annað heimili. Ég var einu sinni hér í hálft ár og það er gott að vera kominn til baka.“

Kavanagh og Gunnar komu til Hollands í gær en það gekk mikið á dagana sem þeir voru að æfa á Íslandi. Þá var Conor McGregor með í för og hann sprengdi MMA-heiminn í loft upp með því að segjast vera hættur rétt áður en hann fór á æfingu í Mjölni. Þrátt fyrir öll lætin var þjálfarinn ánægður með æfingabúðirnar.

Aldrei séð Gunna í svona góðu formi

„Við byrjuðum aðeins seinna en venjulega og Gunni var að æfa með félögum sínum hjá Mjölni sem eru að standa sig frábærlega. Ég hef aldrei séð Gunna í svona góðu formi. Við höfum lagt mikla áherslu á líkamlegu hliðina og einnig unnið í tækninni. Conor vildi koma og hjálpa Gunnari á lokasprettinum. Þetta var góð vika hérna,“ segir Kavanagh en þeir æfðu í kjölfarið í Dublin áður en haldið var til Rotterdam í gær.

Það var afar fátt sem gekk upp hjá Gunnari í síðasta bardaga hans gegn Demian Maia. Breyttu þeir einhverju núna?

„Þeir eru mjög fáir sem eru eins tæknilega góðir og Maia. Strákurinn sem Gunnar mætir núna er meiri í boxi og sparkboxi frekar en jiu jitsu. Það er svolítið fyndið að hugsa til þess að Maia hafi verið kominn með svarta beltið í jiu jitsu áður en nokkur maður á Íslandi hafði heyrt um jiu jitsu,“ segir Kavanagh og glottir.

„Við erum ekki að gera neinar stórar breytingar. Við höfum unnið meira í líkamlega ástandinu en áður. Það er ekki eins og við værum komnir aftur á byrjunarreit. Þetta var bara einn bardagi. Veltivigtin er galopin og bíður eftir því að einhver slái í gegn. Þar horfa margir til Gunna og Tumenov. Ég held að þetta sé því mjög mikilvægur bardagi fyrir veltivigtina í UFC.“

Gunnar hefur klárlega yfirburði gegn Tumenov í gólfinu en Rússinn er gríðarlega höggþungur. Rotari. Það hjálpaði því Gunnari að fá eins sterkan boxara og Conor McGregor í æfingabúðirnar.

Gunnar og Kavanagh á góðri stund í SBG-íþróttasalnum í Dublin.vísir/böd
Gunnar vanur svona andstæðingum

„Að sjálfsögðu hjálpar það. Bæði Conor og Tumenov eru með bakgrunn úr hnefaleikunum. Gunni er búinn að æfa með Conor í mörg ár. Strákar með svona stíl eru venjulega þeir sem Gunnar hefur verið að berjast gegn. Hann er vanur svona andstæðingum. Gunni er ekkert síðri standandi en ég held að það verði mikill gæðamunur á þeim í gólfinu,“ segir Írinn yfirvegaður.

Tapið gegn Maia var auðmýkjandi fyrir Gunnar. Hann sá aldrei til sólar í bardaganum en tókst þó að lifa af þrjár lotur með Brasilíumanninum magnaða.

„Það hefur aldrei vantað auðmýkt í Gunna. Eftir svona bardaga var hægt að gera tvennt. Hlaupa í burtu frá leiknum og hætta eða taka það jákvæða úr bardaganum. Ég las eftir bardagann að þessi bardagi hefði kennt Gunna mikið um að komast af. Hann veit núna að hann getur lent í mjög erfiðum aðstæðum, verið algjörlega búinn á því en samt komist í gegnum það. Að gefast ekki upp heldur halda áfram. Hann hættir ekki. Alveg sama í hverju hann lendir. Hluti af því að ná árangri er að nota töp til þess að styrkjast. Gunni hefur gert það.“

Risastór tækifæri í veltivigtinni

Þjálfarinn bendir á að þeir bestu í veltivigtinni séu farnir að reskjast og því séu stór tækifæri í kortunum fyrir Gunnar og fleiri.

„Ef maður lítur á veltivigtina þá erum við meistarann, góða áskorendur eins og Maia og fleiri. Þeir eru allir um tíu árum eldri en Gunni. Þeir eru að klára sinn feril á næstu árum. Tumenov er 24 og Gunni 27 ára. Það er því risastórt tækifæri fyrir einhvern að koma inn af krafti í þyngdarflokkinn. Sá sem vinnur þennan bardaga tel ég að muni eiga möguleika á því að berjast um titilinn innan árs. Sérstaklega þar sem ég held að meistarinn muni hætta fljótlega. Þetta er gríðarlega mikilvægur bardagi og við megum ekki við öðrum mistökum í Hollandi. Við verðum að vinna þennan bardaga.“

Kavanagh ásamt Conor McGregor sem hann þjálfar rétt eins og Gunnar.vísir/getty
Pressan hefur ekki áhrif á Gunna

Eftir tapið gegn Maia féll Gunnar út af styrkleikalista UFC og tap gegn Tumenov mun gera leiðina á toppinn enn lengri. Það er því mikið undir en Kavanagh sér ekki að pressan sé að fara illa með Gunnar.

„Ef að pressan er að fara með hann þá gerir hann mjög vel í að leyna því. Ég á enn eftir að sjá Gunna sýna einhver merki um að pressan fari illa með hann í einhverju,“ segir Kavanagh og brosir breitt.

„Ég held að Gunni sætti sig við þá stöðu sem hann er í núna. Hann fór með mig á snjósleða upp í fjöll í gær og lét mig finna fyrir pressunni þar. Hann hló bara og skemmti sér á meðan ég ríghélt í stýrið alveg skíthræddur. MMA er mun öruggara en það sem Gunni er að gera af sér dags daglega.“

Á snjósleða tveim vikum fyrir bardaga

Það vakti óneitanlega athygli að Gunnar væri að leika sér á snjósleða tveim vikum fyrir bardaga. Ekki beint skynsamlegasti  undirbúningurinn.

„Það er margt sem Gunni gerir sem aðrir gera ekki. Svona er hans eðli. Bardagaíþróttirnar skipta hann mjög miklu máli. Hann hefur lagt mikið á sig í aðdraganda þessa bardaga og við erum að reyna að stækka bensíntankinn hans aðeins. Hann nýtur þess samt líka að gera aðra hluti. Hann er ungur maður sem hefur gaman að því að leika sér í náttúrunni. Það getur enginn stöðvað hann í að gera það. Hvorki ég né faðir hans,“ segir Írinn og hlær dátt.

Bardagi Gunnars og Tumenov fer fram þann 8. maí og hefst bein útsending á Stöð 2 Sport klukkan 18.00. Tryggðu þér áskrift á 365.is.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×