Sport

Þjálfari Gunnars: Frábærar æfingabúðir á Íslandi

Henry Birgir Gunnarsson í Dublin skrifar
Gunnar og Kavanagh silkislakir í æfingasal Kavanagh í Dublin.
Gunnar og Kavanagh silkislakir í æfingasal Kavanagh í Dublin. vísir/friðrik þór
Þjálfari Gunnars Nelson er Írinn John Kavanagh en hann þjálfar einnig Conor McGregor sem er í aðalbardaga kvöldsins í Dublin.

Kavanagh var með æfingabúðir á Íslandi í heilan mánuð fyrir bardagann og var McGregor einn þeirra sem æfði með Gunnari á Íslandi. En af hverju Ísland?

"Það var þáttur í sjónvarpinu um daginn þar sem var verið að bera saman mataræði fólks um allan heim. Ísland var þar í fyrsta sæti," segir Kavanagh sem hefur eytt miklum tíma á Íslandi síðustu ár og kann vel við sig þar.

"Í hvert skipti sem ég kem heim frá Íslandi þá þarf ég í klippingu og klippa á mér neglurnar. Það virðist allt vaxa hraðar á Íslandi.

"Það er líka gott að vera á Íslandi. Þar er loftið hreint og gott. Frábært vatn, hollur matur og þar er líka smá einangrun og friður sem við fáum ekki hérna í Dublin. Á Íslandi fengum við góðan mánuð til að æfa. Strákarnir voru komnir í rétt andlegt ástand eftir þessar æfingabúðir."

Kavanagh segist hafa eytt sex af síðustu tólf mánuðum á Íslandi og hann er orðinn hálfgerður Íslendingur.

"Ég á Kringlukort, er með bankareikning á Íslandi. Ég er aðeins farinn að læra íslensku. Ég er líka kominn með ljóshærða kærustu og það er frekar íslenskt," segir John og hlær dátt.

Þessi stórbardagi verður í beinni á Stöð 2 Sport og hefst útsending kl. 19:00.  Fáðu þér áskrift á www.365.is.

MMA

Tengdar fréttir

Hugsa að þakið fari af húsinu

Gunnar Nelson er öruggur og yfirvegaður að venju fyrir bardaga kvöldsins í Dyflinni. Hann fær mikinn stuðning frá heimamönnum og Gunnar segir góðar líkur á því að bardaginn klárist í fyrstu lotu.

Gunnari skutlað 100 metra í rútu

Strákarnir sem taka þátt í bardagakvöldinu í 02 Arena í kvöld eru svo lánsamir að gista í næsta húsi og þurfa því ekki að ferðast langt á keppnisstað.

Gunnar gríðarlega vinsæll í Írlandi

Gunnar Nelson er gríðarlega vinsæll í Dublin þar sem bardagakvöld UFC fer fram á laugaradaginn. Búast má við að aðdáendurnir í Dublin verði á bandi Gunnars þegar hann berst gegn Zak Cummings.

UFC Dublin: Áætlað að 350 milljónir manns horfi á laugardaginn

Blaðamannafundur UFC fyrir bardagana hér í Dublin var að ljúka þar sem allt snérist um Conor McGregor. Írinn skemmtilegi mætir Diego Brandao í síðasta bardaga kvöldsins en Gunnar Nelson og Zak Cummings eru í næstsíðasta bardaga kvöldsins.

Gunnar skellti sér í bíó í gær

Gunnar Nelson heldur í hefðirnar þegar kemur að undirbúningi fyrir bardaga og á því varð engin breyting í gær.

Sjáðu vigtun Gunnars | Myndband

Gunnar Nelson mætir Bandaríkjamanninum Zak Cummings á UFC-kvöldi í Dyflinni í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport annað kvöld.

Gunnar: Má ekki vanvirða andstæðinginn

Gunnar Nelson var í viðtali hjá Valtýri Birni Valtýssyni í kvöldfréttum Stöðvar 2 þar sem hann ræddi bardagann á laugardaginn gegn Zak Cummings.

Gunnar segir aldrei rassgat en samt elska hann allir

Æðsti prestur UFC-safnaðarins, Dana White, er mættur til Dublin og var viðstaddur vigtunina í gær. Í kjölfarið hélt hann líklega lengsta blaðamannafund allra tíma. Þrátt fyrir það var fundurinn þrælskemmtilegur.

Hlakka til að djöflast í honum

Gunnar Nelson er klár í slaginn fyrir kvöldið og hann fór um víðan völl í ítarlegu viðtali við Vísi.

Upphitun fyrir bardaga Gunnars og Cummings | Myndband

Eftir viku mætast þeir Gunnar Nelson og Bandaríkjamaðurinn Zak Cummings á UFC bardagakvöldi í O2 Arena í Dublin. Bardaginn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og hefst útsendingin kl. 19:00.

UFC Dublin: Myndir úr vigtuninni

Eins og fram hefur komið náðu Gunnar Nelson og Zak Cummings tilsettri þyngd fyrir bardagann annað kvöld. Báðir vigtuðu þeir sig inn í kringum 77 kg fyrr í dag en myndir úr vigtuninni má sjá hér.

Bakvið tjöldin fyrir síðasta bardaga Gunnars

Gunnar Nelson berst sinn fjórða UFC bardaga á laugardaginn þegar hann mætir Bandaríkjamanninum Zak Cummings. Vísir mun fylgja Gunnari vel eftir í aðdraganda bardagans líkt og síðast.

Gunnar með sérhannaðan góm á laugardaginn

Jón Viðar Arnþórsson, formaður Mjölnis, birti í dag mynd af gómnum sem Gunnar Nelson mun nota í bardagnum á laugardaginn en gómurinn er sérhannaður fyrir Gunnar.

Gunnar: Yrði gaman að keppa í Las Vegas

Bardagakappinn var í viðtali í kvöldfréttum Stöðvar 2 þar sem hann útilokaði ekki að næsti bardagi hans færi fram í sjálfri borg syndanna, Las Vegas í Bandaríkjunum.

Uppselt á vigtunina í dag

Áhuginn fyrir UFC-kvöldinu í Dublin á morgun er með hreinum ólíkindum. Í dag verða kapparnir vigtaðir og í fyrsta sinn var selt inn á viðburðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×