Sport

Þjálfari Conors: Gæti ekki verið stoltari

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Conor McGregor tapaði sínum fyrsta bardaga í UFC.
Conor McGregor tapaði sínum fyrsta bardaga í UFC. vísir/getty
Fimmtán bardaga sigurgöngu Conors McGregors lauk í Las Vegas á sunnudagsmorgun þegar hann tapaði veltivigtarbardaga gegn Nate Diaz á hengingartaki í annarri lotu.

Sjá einnig:Tyson Fury lét Conor og UFC heyra það: MMA er kjaftæði

Sigur Diaz kom nokkuð á óvart, en Íslandsvinurinn Conor fór upp um tvo þyngdarflokka fyrir bardagann. Hann átti upphaflega að mæta Rafael Dos Anjos í bardaga um heimsmeistaratitilinn í léttvigt.

Conor var auðmjúkur eftir tapið í viðtali í búrinu en sendi svo Dos Anjos og Jose Aldo væna pillu í Instagram-færslu nokkrum klukkutímum síðar eins og lesa má hér.

John Kavanagh, þjálfari Conors og Gunnars Nelson, birti mynd af sér og Conor úr eftirpartí á Instagram-síðu sinni og sagðist ekki geta verið stoltari af litla bróður sínum. Þeir eru þó ekki bræður svo því sé haldið til haga.

„Hann kom heilli íþrótt á heimskortið og kom litlu eyjunni Írlandi á MMA-kortið. Fólk veit ekki hversu mikið hann leggur á sig,“ segir John Kavanagh.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×