Fótbolti

Þjálfari Arons rekinn

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Tímabilið hefur farið illa af stað hjá Aroni og félögum
Tímabilið hefur farið illa af stað hjá Aroni og félögum visir/getty
Viktor Skripnik hefur verið rekinn sem þjálfari Werder Bremen í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Aron Jóhannsson leikur með Werder Bremen og mun því fá nýjan þjálfara en liðið hefur byrjað tímabilið í þýsku úrvalsdeildinni afleitlega og tapað þremur fyrstu leikjum sínum.

Werder Bremen tapaði 4-1 fyrir Borussia Monchengladbach í gær og var 4-0 undir í hálfleik. Aron kom inn á sem varamaður í hálfleik og lagði upp mark Werder Bremen áður en hann var rekinn af leikvelli tíu mínútum fyrir leikslok.

AlexaanderNouri tekur tímabundið við stjórn liðsins en hann þjálfar U23 ára lið liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×