Sport

Þjálfari Anítu: Ég er sáttur en Aníta vildi meira

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Aníta náði fimmta sæti í kvöld.
Aníta náði fimmta sæti í kvöld. vísir/stefán
„Ég sjálfur get ekki verið annað en sáttur en fyrstu viðbrögð Anítu voru ekki þau sömu,“ sagði Gunnar Páll Jóakimsson, þjálfari Anítu Hinriksdóttur, við Vísi nú rétt í þessu.

Aníta hljóp til úrslita í 800 metra hlaupi á HM innanhúss í Portland í Bandaríkjunum í kvöld og hafnaði í fimmta sæti. Hún hljóp á 2:02,58 mínútum sem er hægara en í undanrásum.

„Hún gerir svo miklar kröfur til sín. Aníta vill bara vera í baráttunni um verðlaun. Hún spurði sig bara af hverju hún gat ekki haldið í við þær á loaksprettinum og var bara svekkt með það,“ sagði Gunnar en Aníta átti ekki mikið eftir á síðasta hringnum og missti þar fjórða sætið.

„Hana langar að vera í baráttunni um verðlaun en þetta er nú þær allra bestu sem hún er að keppa við. Ég er sáttur við niðurstöðuna en hún er ekki alveg sátt.“ sagði Gunnar Páll.

Aníta hefur verið mjög öflug á æfingum undanfarið og getur hlaupið hraðar eins og hún sýndi í undanrásum í gær. Úrslitahlaupið var bara þannig að erfitt var fyrir Anítu að halda uppi hraða.

„Þarna voru lakari millitímar og í svona aðstæðum kemur í ljós hverjar eru virkilega þær bestu. Hraðabreytingarnar eru þannig að keyrt er rosalega í lokin. Það er miklu erfiðara því þá er komin mikil mjólkursýra í vöðvana. Anítu vantar enn smá styrk til að halda í við þær bestu á svona spretti,“ sagði Gunnar Páll.

„Það er bara svona að vera komin undir alvöru pressu á stóra sviðinu. Þá er erfitt að gera alveg það sama á og maður er að gera á æfingum. Aníta getur alveg hlaupið hraðar en bara ekki í svona hlaupi. Það er samt frábært hjá henni að fylgja fimmta sætinu á EM í fyrra eftir með fimmta sæti núna,“ sagði Gunnar Páll Jóakimsson.


Tengdar fréttir

Aníta fimmta á HM innanhúss

Aníta Hinriksdóttir hljóp á 2:02,58 mínútum og varð í fimmta sæti eins og á EM í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×