Fótbolti

Þjálfari ákærður í Svíþjóð fyrir kynferðisbrot á stærsta unglingamóti heims

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Mynd tengist efni fréttar ekki beint.
Mynd tengist efni fréttar ekki beint. vísir/getty
Þjálfari norður-afrísks fótboltaliðs sem tók þátt í Gothia Cup í Gautaborg, stærsta unglingamóti heims, sætir lögsókn fyrir kynferðisbrot gegn þremur stúlkum á mótinu.

Gothia Cup hefur verið haldið síðan 1975 og er stærsta unglingamót heims ef miðað er við fjölda keppenda. Þarna keppa árlega ríflega 35.000 fótboltastrákar og stúlkur á aldrinum ellefu til nítján ára.

Íslensk lið keppa á hverju ári á Gothia Cup en í ár voru þar lið frá FH, Dalvík/Reyni, Leikni Reykjavík, Keflavík og ÍBV.

Þjálfarinn, sem er 36 ára gamall, mætir í dómsal í dag og mætir stúlkunum þremur sem hann braut á en þær eru aðeins fimmtán ára gamlar. Þetta kemur fram á vef sænska blaðsins Expressen.

Brotið átti sér stað fyrir utan aðalinnganginn á Ullevi-leikvanginum, fyrrverandi þjóðarleikvangi Svíþjóðar, eftir setningarhátíð mótsins sem lauk í síðustu viku.

Þjálfarinn var í hópi fjörutíu drengja sem stöðvuðu stúlkurnar og gengu á þær. „Þeir reyndu að kyssa þær og að koma höndum undir föt stúlknanna. Dóttir mín fékk tungu fullorðna mannsins upp í sig. Stelpurnar fóru alveg í kerfi og reyndu að verja sig,“ er haft eftir móður einnar þeirrar á vef sænska ríkissjónvarpsins.

Þjálfarinn var handtekinn á mótinu grunaður um þrjú kynferðisbrot og nú er búið að kæra hann. Liðinu hans var vísað úr keppni við litla hrifningu leikmanna og forráðamanna þess, að því fram kemur á vef Gautaborgar-Póstsins.

„Hann þuklaði á brjóstum og rasskinnum tveggja stúlkna og kyssti þær á munninn,“ segir saksóknarinn Stefan Lind en þjálfarinn neitar allri sök. „Hann neitar glæpnum alfarið. Hann viðurkennir að hafa kysst tvær af stúlkunum á kinnina en það hafi verið með samþykki þeirra,“ segir Lind.

Sögur stúlknanna eru allar eins og sagðar mjög trúanlegar en þær héldust óbreyttar frá fyrstu yfirherslu. Sem fyrr segir mæta þær hinum brotlega í dómsal í dag.

Búið er að taka vegabréfið af þjálfaranum og honum bannað að fara úr landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×