Fótbolti

Þjálfarastarfið er lífsstíll | Kíkt á bak við tjöldin hjá Nordsjælland

Vísir kíkti í heimsókn í Íslendinganýlenduna hjá danska liðinu FC Nordjsælland á dögunum.

Ólafur Kristjánsson þjálfar liðið en með því leika Guðjón Baldvinsson, Guðmundur Þórarinsson, Rúnar Alex Rúnarsson og Adam Örn Arnarson.

Ólafur hafði unnið áður fyrir félagið og meðal annars njósnað fyrir þá er liðið keppti í Meistaradeildinni. Það kom því ekki mörgum á óvart er hann fékk tækifærið.

„Þetta er skipulagt félag sem hefur metnað að vera á toppnum en ekki endilega meistari á hverju ári. Félagið skilgreinir sig sem uppeldisfélag," segir Ólafur og bætir við að félagið vilji sjá liðið spila góðan fótbolta og ala upp leikmenn.

„Þetta er ungt félag og því erum við í neðri hlutanum með aðsókn og stemningu. Miðað við að þetta sé fjölskyldufélag þá byggist upp kjarni sem endar á því að verða harðir stuðningsmenn félagsins. Við eigum samt langt í land."

Þjálfarinn segir líf sitt hafa breyst talsvert eftir að hafa orðið þjálfari hjá atvinnumannafélagi þar sem hann er með marga aðstoðarmenn.

„Ég er að breytast úr B-manneskju í A. Ég reyni að mæta í vinnuna um sjö. Svo er ég kominn heim fyrir um kvöldmat venjulega. Að vera þjálfari er ekki eins og vinna. Þetta er lífsstíll og þetta er alltaf í hausnum á manni."

Strákarnir bera Ólafi vel söguna.

„Óli er taktískasti þjálfari sem ég hef kynnst. Hann elskar taktík. Hann er nútímalegur þjálfari sem vill spila boltanum með jörðinni," segir Rúnar Alex meðal annars í innslaginu.

Guðmundur Þórarinsson hefur sífellt verið að bæta sinn leik. Var góður með U-21 árs liðinu og vill fara að fá tækifæri með A-landsliðinu.

„Mér finnst ég eiga skilið að vera búinn að fá sénsinn hjá landsliðinu ef ég á að vera alveg hreinskilinn. Það er eitthvað sem ég horfi á og vill vera hluti af," segir Guðmundur.

Innslagið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan. Það voru þeir Garðar Örn Arnarson og Viggó Hansson sem hittu strákana í Danmörku en Stefán Snær Geirmundsson klippti innslagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×