Innlent

Búið að opna Þingvallaveg eftir umferðaslys

Sylvía Hall og Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifa
Lögreglan og viðbragðsaðilar eru á staðnum.
Lögreglan og viðbragðsaðilar eru á staðnum. VÍSIR/Jóhann K.
Þingvallavegi við Æsustaði hefur verið lokað eftir að bílslys varð á veginum og eru lögregla og sjúkraflutningamenn á vettvangi. Þrír voru fluttir á slysadeild, einn alvarlega slasaður.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu eru tveir til þrír slasaðir en viðbragðsaðilar eru enn að störfum.  Lögregla bendir á Kjósaskarðsveg á meðan lokun stendur.

Í pósti sem Lögreglan sendi tíu mínútur í sex kom fram að Lögregla væri að ljúka störfum á vettvangi og myndi opna veginn innan nokkurra mínútna. 

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×