Innlent

Búið að opna Þingvallaveg eftir alvarlegt slys

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Einn er talinn alvarlega slasaður eftir slys á Þingvallavegi fyrr í kvöld.
Einn er talinn alvarlega slasaður eftir slys á Þingvallavegi fyrr í kvöld. Vísir/Pjetur
Mótorhjólamaður er alvarlega slasaður eftir að hafa dottið af hjóli sínu á Þingvallavegi við Leirvogsá fyrr í kvöld. Að sögn lögreglu er talið að hann hafi misst stjórn á hjólinu og lent utan í vegriði.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var maðurinn fluttur á Landspítalann. 

Uppfært klukkan 21.00: Búið er að opna Þingvallaveg fyrir umferð á nýjan leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×