Innlent

Þingstörfin í hnút og starfsáætlun Alþingis farin úr skorðum

Sveinn Arnarsson skrifar
Ekki sér fyrir endann á þingstörfum. Þingi átti að ljúka síðastliðinn föstudag samkvæmt starfsáætlun þingsins og í gær voru fjárlög enn til umræðu.

Þingflokksformenn hittust í gær og ræddu stöðu mála. „Þinglok voru ekki einu sinni til umræðu á þeim fundi,“ segir Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks.

Ásmundur Einar Daðason, þingflokksformaður Framsóknarflokksvísir/pjetur
Ásmundur Einar Daðason, þingflokksformaður Framsóknarflokks, tók í sama streng. „Það tekur allt enda einhvern tímann. Þingið mun ljúka sínum störfum hvenær svo sem það verður.“

„Það þarf enn að ræða fjárlög, nú síðast á laugardaginn kom formaður fjárlaganefndar með tvær breytingartillögur við frumvarpið,“ segir Steingrímur J. Sigfússon.

„Í ofanálag kemur meirihlutinn með málið tveimur vikum of seint inn í þingið til umræðu svo við munum líklega verða hér fram að Þorláksmessu í þinginu og ekki loku fyrir það skotið að við þurfum að hittast milli jóla og nýárs til að klára fjárlagafrumvarpið.“

Forseti þingsins óskaði eftir því að geta haldið næturfund til að klára umræður um fjárlög. Forsætisráðherra notaði það tækifæri til að saka stjórnarandstöðuna um grímulaust málþóf og tilraun til að slá Íslandsmet í málþófi. Róbert Marshall, þingmaður Bjartrar framtíðar, tók orð Sigmundar heldur óstinnt upp og velti því fyrir sér hvort forsætisráðherrann núverandi væri sá ómerkilegasti sem setið hefur í þeim stól.

Önnur umræða fjárlaga hefur nú staðið í á fimmta tug klukkustunda og ekki sér enn fyrir endann á henni. Fjöldi mála bíður og líklegt að þingmenn þurfi að hafa hraðar hendur á næstu dögum til að ljúka þingstörfum fyrir jól.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×