Innlent

Þingmenn verð að fara að vilja þjóðarinnar

Hjörtur Hjartarson skrifar
Forseti Alþingis veitti í dag viðtöku áskorun með ríflega 53 þúsund undirskriftum þess efnis að þingsályktunartillaga um slit á viðræðum við Evrópusambandið verði dregin tilbaka. Formaður samtakanna Já Ísland segir ómögulegt fyrir alþingismenn að líta framhjá vilja þjóðarinnar þegar ákvörðun um framhaldið verður tekin.

Undirskriftasöfnunin stóð yfir í 63 daga og er beint til sextíu og þriggja alþingismanna. Auk þess að vilja að tillagan um slit á viðræðunum verði dregin tilbaka þá er skorað á þingmenn að gefa þjóðinni kost á að kjósa um framhald viðræðanna. Formaður samtakanna Já Ísland segir að hvergi verði hvikað frá þeirri kröfu.

„Henni verður haldið áfram til streitu.Ég heyrði það í viðtali við utanríkisráðherra í hádegisfréttum þar sem hann sagði að tillagan yrði að sjálfsögðu ekki dregin tilbaka en það væri hægt að gera alls konar málamiðlanir svo fremi sem niðurstaðan yrði honum að skapi. Það kalla ég ekki að hlusta á vilja þjóðarinnar,“ segir Jón Steindór Valdimarsson, formaður samtakanna, Já Ísland.

Jón Steindór telur erfitt fyrir alþingismenn að taka ekki mark á undirskriftalistanum þegar og ef til atkvæðagreiðslu kemur um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra.

„Ég held að ef menn leggja saman þessar undirskriftir og mótmælafundina á Austurvelli þá sjá þingmenn að þeir eru að vaða í villu og svíma með þetta mál.“

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður SjálfstæðisflokksinsMynd/Daníel
Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að undirskriftarlistinn hljóti að hafa áhrif í umræðunni eins og allt annað.

„En stóra málið er hinsvegar að við verðum að ræða efnislega hvað felst í því að vera í Evrópusambandinu. Það er nokkuð sem mér hefur þótt skorta.“

Guðlaugur segist ekki óttast viðbrögð almennings ef þingsályktunartillagan verður samþykkt.

„Það er of snemmt að segja til um það. Það er mjög mikilvægt að við tökum upplýsta umræðu um það hvað felst í að vera í Evrópusambandinu. Ég kvíði því ekki, þvert á móti hlakka ég til að taka þátt í slíkri umræðu. Ég tel hana afskaplega mikilvæga og nauðsynlega,“ segir Guðlaugur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×