Innlent

Þingmenn skoða leiðir til innra eftirlits með lögreglu

Una Sighvatsdóttir skrifar
Mál lögreglumannsins sem grunaður er óeðlileg samskipti við brotamenn hefur um ýtt undir umræðu um þörf þess að koma á innra eftirliti með störfum lögreglu. Þeir sem málið varðar sammælast um að slíkt eftirlit sé bæði tímabært og nauðsynlegt. Spurningin er aðeins með hvaða hætti slíku eftirliti verður komið á.

Ögmundur Jónasson, formaður stjórskipunar- og eftirlitsnefndar segir að horft sé til tvenns konar nálgunar. „Annars vegar hvort það eigi að vera þingi alfarið sem hafi umsjón með þessum málum, eða hvort það eigi að vera sérstök stofnun sem hafi þetta verkefni með höndum."

Eftirlitsnefnd ekki fullnægjandi úrræði

Sjálfur telur Ögmundur líkleg niðurstaða að farið verði bil beggja og sett á fót stofnun með sterkri aðkomu þingsins. Ögmundur segir núverandi innanríkisráðherra, Ólöfu Nordal, hafa stigið jákvætt skref með því að skipa nefnd um meðferð kærumála gagnvart lögreglu, sem skilaði í nóvember af sér tillögu um skipan þriggja manna eftirlitsnefndar. Ljóst sé hinsvegar að það sé ekki nóg.

„Stjórnskipuna- og eftirlitsnefnd þingsins hefur ákveðið að taka þetta mál upp á eigin spýtur og fara yfir það og skoða hvaða valkostir eru í stöðunni. Ég geri ráð fyrir að við munum taka til hendinni núna fljótlega upp úr áramótum," segir Ögmundur.

Bæði ríkislögreglustjóri og lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafa tjáð fréttstofu að þau telji jákvætt skref að koma á innra eftirliti. Ögmundur segir að sambærileg umræða eigi sér nú stað nánast í öllum ríkjum Evrópu.

Meira aðkallandi eftir því sem rannsóknarheimildir eru víðtækari

„Á þingi Evrópuráðsins hafa þessi mál líka verið til skoðunar, þannig að þetta er brennandi mál alls staðar. En það má segja að þetta hafi ekki verið eins aðkallandi mál hér eins og erlendis, þar sem lögregla býr við miklu rýmri rannsóknarheimildir og leyniþjónustur, sem við höfum ekki. Þar hefur þessi krafa verið miklu ríkari og núna á hryðjuverkaöld, þar sem löggæslan er farin að taka skref inn í persónulegt líf fólks í ríkari mæli en áður, þá gerist þessi krafa mjög ágeng."

Ögmundur bendir á að hér á landi sé það ekki síst lögreglan sjálf sem kalli eftir innra eftirliti, enda ætti það frekar að verða til þess að auka traust almennings til lögreglu en hitt. Hann telur að af því verði á þessu ári, en ítrekar að rétt að að hreyfa sig hægt að setja ekki upp stofnanir að vanhugsuðu máli.

„En það er sem betur fer verið að skoða þetta víða í kerfinu, innan lögreglunnar sjálfrar, í innanríkisráðuneytinu og í þinginu. Þannig að við erum að stíga skref víða í þessum málum."


Tengdar fréttir

Þrálátur orðrómur um leka vakti grun

Grunur leikur á að lögreglumaður hafi fengið greitt fyrir upplýsingar til brotahópa. "Það getur hafa átt sér stað þvingun sem enginn veit af,“ segir lögreglustjóri og minnir á að málið sé enn í rannsókn.

Maður um fertugt handtekinn

Karlmaður um fertugt hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn embættis Ríkissaksóknara á alvarlegum brotum lögreglumanns er í gæsluvarðhaldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×