Innlent

Þingmenn kasti ekki rýrð á Alþingi eða skaði ímynd þess með framkomu sinni

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá þingfundi á dögunum.
Frá þingfundi á dögunum. vísir/stefán
Allir forsetar Alþingis auk þingflokksformanna þeirra fimm stjórnmálaflokka sem sæti eiga á þingi hafa lagt fram sameiginlega þingsályktunartillögu um siðareglur þingmanna.

Reglurnar kveða meðal annars á um eftirfarandi varðandi hvað þingmenn skuli gera sem þjóðkjörnir fulltrúar:

„Taka ákvarðanir í almannaþágu án þess að vera bundnir af fyrirmælum sem kunna að vera í andstöðu við siðareglur þessar, ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með framkomu sinni, nýta þá aðstöðu sem þeim er veitt við störf sín með ábyrgum hætti [...]“

Þá er skýrt kveðið á um að þingmenn megi ekki nýta opinbera stöðu sína til persónulegs ávinnings fyrir sig eða aðra og að þeir skuli greina frá öllum hagsmunatengslum sem máli skipta vegna starfs þeirra.

Samkvæmt tillögunni er þingmönnum gert skylt að afhenda forseta Alþingis undirritaða yfirlýsingu þess efnis að þeir skuldbindi sig til að hlíta siðareglunum. Það sama mun gilda um varaþingmenn sem hafa setið samfellt í fjórar vikur.

Forsætisnefnd mun skipa þriggja manna siðareglunefnd, til fimm ára í senn, sem mun taka til meðferðar erindi vegna meintra brota á reglunum. Í ályktuninni kemur fram að erindi um meint brot á reglunum megi aldrei bitna á sendanda þess:

„Siðareglunefnd getur ákveðið að sendandi erindis njóti nafnleyndar ef telja má ljóst að meðferð málsins geti bitnað á honum,“ segir í þingsályktuninni.

Í greinargerð kemur fram að siðareglurnar byggi á siðareglum Evrópuþingsráðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×