Innlent

Þingmenn gagnrýna bónusgreiðslur: „Ég neita að búa í slíku samfélagi“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Bónusgreiðslurnar eru umdeildar.
Bónusgreiðslurnar eru umdeildar.
Þingmenn gagnrýndu áfram fyrirætlanir um bónusgreiðslur til starfsmanna Kaupþings, gamla Landsbankans og Glitnis á þingi í dag. Hvöttu þeir stjórnvöld til þess að skoða alvarlega tillögur um að skattleggja þessar greiðslur sérstaklega.

„Ofurgreiðslur í kaupaukum eru ögrun við almennt velsæmi. Þær ýta undir úlfúð og vinnudeilur, grafa undan jafnvægi og sátt í samfélaginu og þeim hefur verið mótmælt af aðilum vinnumarkaðarins, almenningi, þingmönnum og fleirum,“ sagði Ólíuna Kjerúlf Þorvarðardóttir á þingi í dag.

Hafa áform stjórna gömlu bankanna um greiðslur bónusa vakið neikvæð viðbrögð víða og lagði Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins meðal annars til að lagður yrði allt að 90-98 prósent skattur á slíkar greiðslur.

Sjá einnig: Indriði segir hægt að setja sérstakan skatt á ofurbónusana



Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra hefur líkt bónusgreiðslunum við sjálftöku en hefur ekki boðað neinar aðgerðir af hálfu ríkisvaldsins vegna bónusgreiðslnanna.

Hvatti Ólína stjórnvöld til þess að grípa í taumana.

„Það er hlutverk löggjafans að setja lagaramma um almenn ásættanleg skilyrði til að tryggja frið og sátt í samfélaginu.“

Undir orð Ólínu tók Elín Hirst, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Sagði hún að bónusgreiðslurnar væru til skammar og samræmdust ekki gildum siðaðs samfélags. Spurði hún hvort að samfélagið ætlaði sér ekki að læra nett af fleygum orðum Styrmis Gunnarssonar í rannsóknarskýrslu Alþingis.

„Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hugsjónir, það er ekki neitt. Það er bara tækifærismennska, valdabarátta.“

„Ég neita að búa í slíku samfélagi,“ bætti Elín við.

Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna hefur óskað eftir því að boðað verði til fundar í efnahags- og viðskiptanefnd. Vill hún að kallaðir verði fyrir fundinn fulltrúar ríkisskattstjóra og fjármálaráðuneytisins og farið verði yfir möguleika á því hvernig skattleggja megi kaupa og aðrar ofurlaunagreiðslur.


Tengdar fréttir

Glitnir greiðir starfsmönnum sínum einnig bónusa

Eignarhaldsfélag allra föllnu bankanna greiða starfsmönnum sínum bónusa en á hluthafafundi Glitnis í mars á þessu ári var tillaga um bónusgreiðslur til starfsmanna samþykkt.

Þingmenn fordæma bónusgreiðslur Kaupþings

Þingmenn lykilflokka Alþingis segja fyrirhugaðar bónusgreiðslur Kaupþings vera siðlausar og engan veginn í takt við kjör almennings. Vilja endurskoða skattalöggjöf.

Indriði segir hægt að setja sérstakan skatt á ofurbónusana

Samþykktar hafa verið milljarða greiðslur til stjórnenda Kaupþings og gamla Landsbankans. Fyrrverandi ríkisskattstjóri segir engin sérákvæði um slíkar greiðslur í lögum en hægt væri að leggja sérstakan skatt á þær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×