Innlent

Þingmaður Sjálfstæðisflokk segir Pírata hafa gert stefnumál flokks síns skýr

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Vilhjálmur segir í Viðskiptablaðinu að enginn hafi aukið gagnsæi í stjórnsýslunni en Davíð Oddsson.
Vilhjálmur segir í Viðskiptablaðinu að enginn hafi aukið gagnsæi í stjórnsýslunni en Davíð Oddsson. Vísir/Anton
„Ég segi bara að Pírötum hefur tekist að gera stefnumálin okkar skýr og njóta góðs af því,“ segir Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokks, í viðtali við Viðskiptablaðið. Hann segir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi alltaf talað um að breyta kerfinu og það sé það sem Píratar vilji líka.

Ákall um gagnsæi

„Þetta er bara ákall sem ég er tilbúinn að taka þátt í með Pírötum að nái fram að ganga. Aukið gagnsæi og að kerfið sé einfaldað,“ segir hann. Vilhjálmur segir í viðtalinu að enginn hafi aukið gagnsæi í stjórnsýslunni en Davíð Oddsson, fyrrverandi formaður flokksins. 

„Við skulum ekki gleyma því hver kom á stjórnsýslulögum og upplýsingalögum. Það var Davíð Oddsson. Hvað annað í opinberri stjórnsýslu hefur aukið gagnsæi meira og bætt vinnubrögð innan stjórnsýslunnar?“ spyr hann.

Svona hefur fylgi flokkanna þróast á síðustu mánuðum. Fjólubláa línan táknar stuðning við Pírata en sú bláa við Sjálfstæðisflokk.MMR
Píratar stærri en stjórnarflokkarnir

Vilhjálmur telur að Píratar og Sjálfstæðisflokkurinn geti átt samleið í ríkisstjórn. „Klárlega,“ segir hann. Það gæti farið svo að það reyni á hvort flokkarnir finni samstarfsflöt eftir næstu kosningar, ef marka má niðurstöður kannana síðustu mánaða.

Píratar eru með þrjá þingmenn í dag og í minnihluta á þinginu á meðan Sjálfstæðisflokkurinn er með 19 þingmenn og í ríkisstjórn. Samkvæmt könnunum mun dæmið hins vegar að öllum líkindum snúast við í næstu kosningum.

Píratar mælast stærstir með 35,6 prósenta fylgi samkvæmt könnun MMR sem birt var í gær, en flokkurinn hefur um alllangt skeið mælst stærsti flokkurinn. Sjálfstæðisflokkurinn mældist með 21,1 prósent.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×