Þingmaður sem þvær allar helgar 13. september 2014 12:00 Þingmaðurinn Katrín veit sjaldnast hvað dagurinn ber í skauti sér nú þegar þingið hefur tekið til starfa að nýju. GVA
Þingmaðurinn Katrín Jakobsdóttir ætlar að mæta á kvöldstund hjá Vinstri grænum um helgina og eyða tíma með fjölskyldunni. Hún segir líf þingmannsins breytast mikið þegar þingið er starfandi, þá missir hún stjórn á tíma sínum því hún veit aldrei hvað dagurinn ber í skauti sér.Hvað gerir þú alltaf um helgar? Ég þvæ hverja einustu helgi. Raunar ver ég megninu af helgum í þvottahúsinu!Stendur eitthvað sérstakt til um þessa helgi? Það stendur til að mæta á kvöldstund hjá Vinstri grænum í Hamraborg á föstudagskvöld þar sem kynnt verður metnaðarfull vetrardagskrá. Svo mun ég hitta gott fólk á laugardagskvöld, verja tíma með fjölskyldunni minni góðu og svo verð ég að sjálfsögðu í þvottahúsinu!Hver er óskamorgunmaturinn um helgar? Hann er pönnukökur með sírópi!Hver er yfirleitt helgarmorgunmaturinn? Ekki pönnukökur með sírópi, svo mikið er víst! En ég borða hafragraut nánast alltaf en fæ mér stundum hrökkbrauð með osti á sunnudögum.Hvernig er dæmigert helgarkvöld? Ef ég er heima þá sest ég í sófann til að horfa á Barnaby lögreglufulltrúa og sofna svo yfirleitt skömmu eftir fyrsta morðið. En stundum nýti ég nú kvöldin til að hitta góða vini og þá endist ég lengur en með Barnaby. Sefur þú út um helgar?Yfirleitt ekki enda með þrjú börn sem vakna snemma. Sef samt lengur en á virkum dögum.Vakir þú fram eftir? Nei, ég lognast yfirleitt út af fyrir miðnætti nema ég sé í þeim mun meira stuði.Ef þú ert næturhrafn færðu þér eitthvað í gogginn á kvöldin? Það kemur fyrir og algjörlega nauðsynlegt ef ég ætla að vaka. Örsjaldan rifja ég upp unglingsárin og borða pitsu í kringum miðnætti – svona einu sinni á ári!Ertu með nammidag? Hvaða nammi færðu þér? Alltof margir dagar í mínu lífi eru nammidagar og þá er lakkrís og súkkulaði fyrsta val.Hvað er í sunnudagskaffinu? Pönnukökur ef tími er til, stundum snúður úr bakaríinu eða bara hrökkbrauð.Hvað er annars að frétta? Af þvottinum? Allt gott að frétta og alltaf nóg af spennandi viðfangsefnum.
Mest lesið Veltir fyrir sér hvort hann sé dottinn úr tísku Lífið Krabbameinið sem týndist: „Fyrst sagði ég bara fokk!“ Áskorun Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“ Lífið Kastast í kekki milli Carragher og kærastans Lífið Svar við spurningu lesanda: Hvað má fróa sér oft í viku? Lífið Líkt við apa og klappað eins og hundi Lífið Veglegir vinningar í páskabingói Blökastsins Lífið Kappakstur milli Hjálmars og Magneu Lífið Tískan sýndi trúnaðarbrest í hruninu Lífið Er sannkölluð Mary Poppins þegar það kemur að töskunni Tíska og hönnun Fleiri fréttir Kappakstur milli Hjálmars og Magneu Tískan sýndi trúnaðarbrest í hruninu Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“ Kastast í kekki milli Carragher og kærastans Veltir fyrir sér hvort hann sé dottinn úr tísku Óhefðbundinn páskamatseðill að hætti Sigurðar Laufdal á OTO Knattspyrnufólk og bransastjörnur fjölmenntu í bíó Líkt við apa og klappað eins og hundi Barnalán hjá Batman Svar við spurningu lesanda: Hvað má fróa sér oft í viku? „Ég get ekki gert upp á milli barna“ Þingforseti, borgarfulltrúi og Frikki Dór í fjölmennu útgáfuhófi Handboltagoðsögn selur glæsihús í Garðabæ Veglegir vinningar í páskabingói Blökastsins Ætlaði sér alltaf að verða leikari Júlí Heiðar og Þórdís eiga von á stelpu: „Djöfull var ég tekin“ Sacha Baron Cohen æfareiður út í Rebel Wilson Chess After Dark strákarnir boða til einvígis aldarinnar Arnar Grant og Vítalía á kaffihúsi og RÚV þrenna í miðborginni Fjandinn laus þegar málshættina vantar Palli snöggreiddist þegar hann var sakaður um að hafa verið tjokkó Undurfagrar páskaskreytingar Keypti íbúðina af huggulegustu hommum landsins Myndaveisla: Bjarni Ben skálaði fyrir einstökum Audi Eyþór stillti Eivøru upp við vegg og lét hana flytja lagið Running Up That Hill „Harry Klein“ er látinn Stjörnulífið: Hlustendaverðlaunin, ferðalög og afmælisgleði Vill komast aftur í vinnuna Vaknaði einn daginn og gat ekki notað hægri höndina Missti fimmtán kíló á sjö vikum í Taílandi Sjá meira