Viðskipti innlent

Þingmaður segir starfsmenn Landsbankans upplifa vanlíðan við störf sín alla daga

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sendi Landsbanknum erindi og spurði hvort ekki standi fyrir dyrum að skipta um stjórnendur í bankanum.
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sendi Landsbanknum erindi og spurði hvort ekki standi fyrir dyrum að skipta um stjórnendur í bankanum. Vísir/Vilhelm
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, segir að stór hluti starfsmanna Landsbankans upplifi vanlíðan við störf sín alla daga. Þetta sagði hann á þingi í dag þar sem hann ræddi um vantraust almennings á Landsbankanum og stjórnendum eftir fréttir af sölu Borgunar. 

„Siðferðisbrestir í íslensku samfélagi eru sífellt meira áberandi og nánast áþreifanlegir í daglegu lífi okkar. Siðferði í stjórnkerfinu hrakar samkvæmt mælingum og þar ganga fremstir í flokki stjórnendur fjármálastofnana,“ sagði hann í ræðu sinni og vísaði annars vegar til sölu Arion banka á hlutum í Símanum og svo viðskipta Landsbankans með hluti í Borgun.

„Yfirmenn Landsbankans hafa ekki axlað ábyrgð á ófaglegum vinnubrögðum sem sköðuðu bankann sem kominn er í ruslflokk í augum fólksins í landinu. En bankinn þarf að spara til að ná til baka axarsköftunum í stjórn bankans og hvert lýta yfirmenn bankans þá? Jú þeir höggva á garðann þar sem hann er lægstur,“ sagði Ásmundur.

Tók hann dæmi af uppsögn spastísks manns úr útibúi bankans í Reykjanesbæ. Maðurinn, sem Ásmundur sagði að hefði verið nýkominn aftur til starfa í bankanum eftir að hafa lent í bílslysi, hafi verið látinn hætta; annaðhvort með því að skrifa undir starfslokasamning eða með uppsögn.

Ásmundur furðaði sig á þessu og sagðist hafa sent stjórn bankans erindi. „Ég sendi þá spurningu til stjórnar Landsbankans hvort ekki standi fyrir dyrum skipulagsbreytingar í efstu lögum bankans. Þar sitja stjórnendur sem eru rúnir öllu trausti almennings og stór hluti starfsmanna upplifir vanlíðan við störf sín alla daga,“ sagði hann á þinginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×