Innlent

Þingmaður Pírata: Flestir orðnir ónæmir fyrir landlægri spillingu mafíu Íslands

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
"Því miður virðast flestir vera orðnir ónæmir fyrir þessari landlægu spillingu mafíu Íslands,“ segir Birgitta Jónsdóttir þingmaður Pírata.
"Því miður virðast flestir vera orðnir ónæmir fyrir þessari landlægu spillingu mafíu Íslands,“ segir Birgitta Jónsdóttir þingmaður Pírata. vísir/valli
Birgitta Jónsdóttir þingmaður Pírata gagnrýnir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra og Sigmund Davíð Gunnlaugsson dómsmála- og forsætisráðherra harðlega í færslu sem hún birti á Facebook í dag. Hún vísar þar með í lekamálið svokallaða á hendur innanríkisráðherra og meintan leka úr Samkeppniseftirlitinu.

„Afskipti Hönnu Birnu þáverandi dómsmálaráðherra af lögreglurannsókn á mögulegri brotlegri háttsemi hjá aðstoðarmanni hennar og yfirlýsingar núverandi skúffudómsmálaráðherra um hvað hann telur vera eðlilega ákvörðun í þessu nýja lekamáli eru sláandi dæmi um að ráðherrar núverandi ríkisstjórnar skilja ekki þrískiptingu valds og eru vanhæfir til að fara með það vald sem þau komust yfir með loforðum sem nú þegar er sannað að voru lygar.“

Samkeppniseftirlitið hefur farið fram á að opinber rannsókn verði gerð á því hvaðan og hvernig trúnaðarupplýsingum um kæru Samkeppniseftirlitsins til sérstaks saksóknara á hendur starfsmönnum Eimskips og Samskipa var lekið til Kastljóss. Sigmundur Davíð sagði í samtali við Eyjuna síðasta föstudag að mikilvægt væri að líta til fyrri fordæma í því máli, þ.e meintum leka úr innanríkisráðuneytinu.

Birgitta gagnrýnir þær yfirlýsingar hans og segir þrískiptingu valdsins ekki virta. Því þurfi að skerpa á þessari skiptingu og þeim viðurlögum sem þurfa að liggja til hliðsjónar ef farið er yfir þá múra.

„Þarf annað hrun til að fólk átti sig á að það er ekki hægt að endurreisa úr fúafjölum og kviksandi sérhagsmuna. Róttækar breytingar eru nauðsynlegar ekki bara hjá yfirvöldum heldur í kerfinu öllu. Það þarf að fara í átak sem krefst mikillar vinnu við að smíða nýtt kerfi sem skaðaminkar svona siðleysi og spillingu sem flæðir um allt,“ skrifar Birgitta.

„Því miður virðast flestir vera orðnir ónæmir fyrir þessari landlægu spillingu mafíu Íslands,“ segir hún að lokum en færslu hennar í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Hanna Birna ber vitni í málinu

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra er á meðal þeirra sem kvödd verða til vitnis í máli ríkissaksóknara á hendur Gísla Frey Valdórssyni.

Segir alvarlegt ef upplýsingum hafi verið lekið

Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir alvarlegt ef í ljós kemur að upplýsingum varðandi meint samráð Eimskips og Samskipa hafi verið leikið til óviðkomandi aðila. Eftirlitið hefur óskað eftir því að ríkissaksóknari rannsaki málið.

Krefst þess að blaðamenn DV verði fangelsaðir

Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, fer fram á að tveir blaðamenn DV verði dæmdir til fangelsisvistar vegna fréttarskrifa um hana í júní, í tengslum við lekamálið svokallaða.

Vilja að Hanna Birna segi af sér

Flokksráð Vinstri grænna telur rétt að Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, segi af sér vegna lekamálsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×