Lífið

Þingmaður hoppaði úr sér stressið og setti húsið á sölu

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Hér má sjá glitta í hið stresslosandi trampólín.
Hér má sjá glitta í hið stresslosandi trampólín. Vísir/fasteign
Þó svo að þingmaðurinn Silja Dögg Gunnarsdóttir hafi sett hús sitt í Reykjanesbæ á sölu þurfa kjósendur í Suðurkjördæmi ekki að örvænta. Hún segist ekki alls ekki vera á leið úr kjördæminu og vill í raun hvergi annars staðar búa en á Suðurnesjum.

Heimili Silju Daggar að Seljudal 5 í Reykjanesbæ er nú komið á sölu hjá fasteignasölunni Brú en hún og maður hennar reistu húsið sjálf árið 2008. Húsið eru rúmir 200 fermetrar að stærð og stendur ekki allsendis langt frá flæðarmálinu.

Í samtali við Vísi segir framsóknarkonan að einungis praktískar ástæður búi að baki flutningunum. Fjölskyldan vilji minnka við sig eftir að elsta barnið á heimilinu flaug úr hreiðrinu.  

Þrátt fyrir að Silja og hennar slekti séu ekki búin að finna sér nýjan íverustað segist hún ekki hafa miklar áhyggjur af því að vera steypa sér í mikið óvissulimbó ef af sölunni verður á næstu misserum. Fasteignamarkaðurinn sé að taka við sér og hefur hún litla trú á öðru en að leit hennar að minni og jafnvel eldri eign muni ganga skjótt og öruggt fyrir sig.

Hún segist muna sjá mikið eftir því að búa í húsinu - sem hún líkir við það að búa í sumarbústað. Ekki síst vegna heita pottsins sem hún leitaði oft í eftir langan dag á þinginu. Trampólínið muni hún þó taka með sér enda segir Silja að það hafi gert sama gagn og heiti potturinn. Fátt sé betra eftir langan átakadag á Alþingi en að hoppa á trampólíninu að sögn þingmannsins.

Myndir af framsóknarvillu Silju Daggar má nálgast hér að ofan og nánari upplýsingar má nálgast á fasteignavef Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×