Viðskipti innlent

Þingmaður Framsóknarflokksins vill leigubílakerfið Uber til Íslands

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Haraldur segir auðvelt að besta kerfi á borð við Uber svo umferðarteppur gætu heyrt sögunni til.
Haraldur segir auðvelt að besta kerfi á borð við Uber svo umferðarteppur gætu heyrt sögunni til. vísir
Haraldur Einarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, gerði nýtt svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins a umtalsefni á þingi í dag en í skipulaginu er meðal annars kveðið á um að almenningssamgöngukerfið Borgarlínu. Áætlað er að hún verði nýtt léttlestar- eða hraðvagnakerfi sem mun mynda samgöngu- og þróunarás sem tengir sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu.

Þingmaðurinn sagði einn stærsta gallann við Borgarlínuna vera þá hversu kostnaðarsöm framkvæmdin verður. Hann viðraði því aðra framtíðarsýn hvað varðar samgöngukerfi höfuðborgarsvæðisins en hugmyndin byggir á þremur tækninýjungum: rafmagnsbílum, sjálfkeyrandi bílum og leigubílakerfinu Uber.

„Með þessu kerfi þyrfti enginn á höfuðborgarsvæðinu að eiga bíl. Bílar yrðu pantaðir líkt og leigubílar í gegnum snjallforrit svipað og leigubílafyrirtækið Uber en markmiðið næst ekki nema að það séu nægilega margir bílar í kerfinu. Í snjallbílakerfinu eru upphafsstaðir og áfangastaðir þekktir þannig að auðvelt er að besta kerfið svo umferðarteppur ættu að heyra sögunni til,“ sagði Haraldur.

Hann sagði að þó að þetta hljómaði fjarstæðukennt þá væri tæknin til staðar og að svona kerfi gæti orðið að raunveruleika eftir 5 til 10 ár.


Tengdar fréttir

Notandi dásamar Uber en leigubílstjórar eru uggandi

Bandaríska hugbúnaðar- og leigubílafyrirtækið Uber er með til skoðunar að hefja rekstur á Íslandi en fyrirtækið hefur notið gríðarlegra vinsælda í Bandaríkjunum og víðar.

Uber bannað á Spáni

Fjórða landið til að banna starfsemi fyrirtækisins í vikunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×