Innlent

Þingflokkur Samfylkingarinnar klofinn í afstöðu til jólarokks

Ingvar Þór Björnsson skrifar
Lagið Santa Claus Goes Straight To The Ghetto með Snoop Dogg er ómissandi hluti af jólahaldinu hjá Loga Einarssyni.
Lagið Santa Claus Goes Straight To The Ghetto með Snoop Dogg er ómissandi hluti af jólahaldinu hjá Loga Einarssyni. Vísir/Samsett
„Þingflokkur Samfylkingarinnar er klofinn eftir aðeins 55 daga farsælt samstarf. Fyrir þann tíma er ég þakklátur,“ skrifar Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar á Facebook síðu sinni og slær á létta strengi.

Klofningurinn er tónlistarlegs eðlis en Logi segir að Guðmundur Andri Thorsson hafi lýst því yfir að þrátt fyrir sextíu ára starf hafi rokkið ekki getið af sér lag sem fangar anda jólanna. „Því er ég ósammála. Rokkið gat af sér fjölda tónlistarmanna sem hafa vissulega haldið í ólíkar áttir en eru afsprengi þess og auðvitað annarra strauma líka,“ segir Logi.

Logi nefnir jafnframt að jólin snúist lítið um bjöllur, skraut og „svona Rokkokkó dót“ í hans huga. Þau snúist meira um samkennd, samveru og frið. „Margir rokkarar og nágrannar þeirra hafa fært okkur ótal perlur sem fanga einmitt þetta og minna okkur á að það hafa ekki allir það jafn gott. Þær tendra a.m.k. minn jólaanda.“

Nefnir formaðurinn nokkur lög sem hann segir vera ómissandi hluta af jólahaldinu. Má þar nefna Santa Claus goes straight to the ghetto með Snoop Dogg og Christmas in prison með John Prine.

Segir I‘ll be home for Christmas með Bob Dylan hljóma meira eins og hótun en loforð

Guðmundur Andri segir að Jólarokk virki eiginlega einungis þegar um er að ræða mótmælendajólalög. „Svona eins og þegar Bob Dylan syngur I´ll be home for Christmas, svo að það hljómar meira eins og hótun en loforð,“ skrifar Guðmundur í athugasemd við færsluna.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi þingmaður og ráðherra fyrir flokkinn, segir að lagið Must Be santa með Bob Dylan sé ómissandi hluti af jólaundirbúningnum á hennar heimili. Þá nefnir Eva Pandora Baldursdóttir, fyrrverandi alþingismaður fyrir Pírata, að Don‘t let the bells end með The Darkness væri eitthvað sem Logi myndi „fíla.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×