Körfubolti

Þið komið fram við Kobe eins og skít

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Durant og Kobe.
Durant og Kobe. vísir/getty
NBA-stjarnan Kevin Durant hjá Oklahoma er ekki ánægður með bandaríska fjölmiðla og sendi þeim tóninn í gær.

„Ég hef verið mjög vonsvikinn með ykkur í vetur því þið hafið komið fram við Kobe eins og skít. Hann er goðsögn en þið skrifið ekki um annað en hvað hann sé lélegur og eigi að hætta. Þið erum að koma fram við goðsögn eins og skít," sagði Durant reiður við fjölmiðlamenn.

„Ég hef verið reiður út af þessu en þið getið kannski slakað aðeins á núna þar sem hann hefur gefið það út að hann ætli sér að hætta."

Durant er af þeirri kynslóð sem ólst upp við að Kobe væri kóngurinn í deildinni.

„Ég dýrkaði manninn. Ég lærði af honum og vildi vera eins og hann. Hann var okkar Michael Jordan."

NBA

Tengdar fréttir

„Jordan sagði mér að njóta síðasta tímabilsins“

Einn besti leikmaður í sögu NBA-deildarinnar, Kobe Bryant, hefur gefið það út að skórnir fari upp í hillu í lok tímabilsins. Hann hefur náð stórkostlegum árangri og haft ótrúleg áhrif á körfuboltann á glæstum 20 ára ferli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×