Skoðun

Þið eruð óþörf – út með ykkur!

Þórarinn Eyfjörð skrifar

Það var dapurleg kveðja sem ríkisstarfsmenn fengu frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, og Vigdísi Hauksdóttur, þingmanni Framsóknarflokksins, á forsíðu Fréttablaðsins þann 24. september síðastliðinn. Kveðjan var klár og ljós: „Þú þarna ríkisstarfsmaður! Burtu með þig! Við erum að hagræða og við ætlum að reka þig! Svona…út með þig!“ Það var helst á Guðlaugi Þór að skilja að ef stjórnarflokkarnir myndu ekki ganga fram í þessu af krafti, þá myndi sjálfur hann taka málin í sínar hendur. Skírari verða skilaboðin nú ekki.



Stjórnmálamönnum af því kaliberi sem Guðlaugur og Vigdís eru, er einstaklega lagið að slíta í sundur samhengi hlutanna. Í samfélagi þar sem sitjandi stjórnvöld færa þeim ríku dýrar gjafir á kostnað almennings, stórskaða og rýra skattkerfi landsins þegar mikil þörf er á að allir leggist á árarnar, láta spillingu viðgangast, hafa á stefnuskrá að minnka aðhald og eftirlit með markaðs- og samráðssóðum, er eins gott að stjórnmálamenn hafi svör á reiðum höndum um hvað þeir séu að gera til að koma samfélaginu á réttan kjöl. Og ekki vantar greið svör frá þeim Guðlaugi og Vigdísi hvað það er sem helst þarf að laga í samfélaginu: „Það þarf að reka ríkisstarfsmenn.“ Hún er nokkuð stæk þráalyktin af þessari smjörklípu.



Aukið álag og lækkuð laun

Eftir hrun tóku opinberir starfsmenn og starfsmenn á almennum markaði á sig verulegar byrðar. Þetta þekkja allar fjölskyldur landsins sem þurfa að vinna fyrir brauði sínu. Aukið álag og lækkuð laun var hlutskipti almenns launafólks í hreinsunarstarfinu eftir partíið sem hrunflokkarnir undirbjuggu. Það var almennt launafólk sem hélt samfélaginu gangandi. Það voru meðal annars starfsmenn sýslumannsembætta, tollsins, Vegagerðarinnar, lögregluembættanna og heilbrigðiskerfisins, kennarar, læknar og hjúkrunarfólk auk allra hinna, sem héldu samfélaginu gangandi. Já, og við skulum ekki gleyma starfsfólki Fiskistofu sem sá til þess að gangverk fiskveiðistjórnunarkerfisins stoppaði ekki og útgerðin fékk sitt tækifæri til að blómstra. Þetta er fólkið sem ofurþingmennirnir Guðlaugur Þór og Vigdís Hauksdóttir vilja núna reka.



Gæti hið ágæta spakmæli „Margur heldur mig sig“ átt við hér? Getur hugsast að umræddir þingmenn séu gagnslausir og til óþurftar fyrir íslenskt samfélag og í taugaveiklaðri leit sinni að upphafningu veitist þeir að þeim sem verja skyldi? Eða er þessi aðför að ríkisstarfsmönnum hluti af stærra plotti? Getur verið að það leynist hjá þeim ásetningur um að eyðileggja og lama innviði samfélagsins og koma kjarnastarfsemi þess í hendur einkavina, eins og dæmin sanna að flokkar þeirra hafa stundað um áraraðir með sorglegum afleiðingum fyrir almenning í þessu landi?



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×