Skoðun

Þétting byggðar hefur mistekist

Eyþór Arnalds skrifar
Þétting byggðar gengur út á það að fleiri búi á sama stað og geti sótt þjónustu stutta vegalengd. Með þéttingu byggðar eiga lífsgæði að aukast þar sem minni tími fer í að ferðast á milli staða og meiri tími er til að njóta. Undanfarin ár hefur borgarstjórnarmeirihlutinn unnið að þéttingu byggðar í miðborg Reykjavíkur. Ætla mætti því að þar hefði orðið umtalsverð íbúafjölgun. Tölurnar segja aðra sögu. Samkvæmt gögnum Hagstofu Íslands hefur orðið 2% fólksfækkun í póstnúmeri 101 á einu ári.

Fréttamiðillinn Kjarninn birti greiningu byggða á gögnum Reykjavíkurborgar 11. apríl síðastliðinn. Þar kemur fram að í miðborginni hefur orðið fólksfækkun um 9% á fimm árum. Þetta er stórfelld breyting á stuttum tíma og bendir til þess að þétting byggðar hafi mistekist. Íbúabyggð í miðborginni hefur dregist stórlega saman þrátt fyrir að mikið hafi verið gert í að þétta byggð. Skortur á húsnæði og lóðum í Reykjavík ásamt þrengingum í umferð hafa leitt til þess að margir hafa flutt í nágrannasveitarfélögin. Þéttingarstefnan eins og hún hefur verið framkvæmd hefur því dreift byggð um höfuðborgarsvæðið. Á meðan fjölgun í nágrannasveitarfélögunum er 3% á einu ári og um 8% á Suðurnesjum er heildarfjölgun í Reykjavík mæld í prómillum en ekki prósentum. Þess ber að geta að framsetning gagna var breytt á vef Reykjavíkurborgar eftir að Kjarninn birti greiningu sína og er núna ekki lengur hægt að fylgjast með miðborginni sérstaklega.

Ný nálgun í þéttingu byggðar

Margir vilja búa í miðborginni en er það ókleift þar sem íbúðaverð er í hæstu hæðum. Ungt fólk sem vill búa nálægt háskólanum hefur fáa kosti. Þétting byggðar tókst á margan hátt vel þegar farið var í að leyfa íbúðabyggð í Skuggahverfi sem áður var með atvinnustarfsemi. Á sama hátt væri hægt að leyfa háhýsi í Örfirisey svo dæmi sé tekið en þar eru núna olíutankar. Grandinn er nú þegar með margs konar hverfisverslun og þjónustu en þar er ekki ein einasta skipulögð íbúð enda er svæðið skipulagt atvinnu- og hafnarsvæði.

Mögulegt er að byggja 10-15 þúsund manna byggð í áföngum í Örfirisey og bjóða þar fram myndarlega þróun byggðar sem myndi létta á ójafnvægi í umferð og vera valkostur fyrir fólk sem vill búa á miðsvæði. Samhliða þarf að ráðast í að leysa umferðarvandann með raunsæjum lausnum. Ein leið til að létta á umferð er að tengja Reykjavík við Garðabæ með Skerjabraut. Slík slagæð myndi létta á umferð innan Reykjavíkur og umferð til og frá borginni. Þessi viðbót myndi létta á umferð um alla borg en þeir sem búa í austurborginni þurfa að þola eilífar umferðartafir sem ekki eru boðlegar í 120 þúsund manna borg.

Núverandi stefna borgarstjórnar mun að óbreyttu gera ferðir úr Grafarvogi, Árbæ og Breiðholti enn þyngri og er nauðsynlegt að snúa þeirri óheillaþróun við. Það þarf nýja nálgun í skipulagsmálum.

Höfundur er frambjóðandi í leiðtogaprófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×