Erlent

Þetta vitum við um árásina á jólamarkaðinn í Berlín

Atli Ísleifsson skrifar
Vörubílnum var ekið 50 til 80 metra áður en bílnum var numið staðar við stóra jólatréð á markaðssvæðinu.
Vörubílnum var ekið 50 til 80 metra áður en bílnum var numið staðar við stóra jólatréð á markaðssvæðinu. Vísir/AFP
Staðfest er að tólf hafi látið lífið og 48 eru slasaðir, nokkrir lífshættulega, eftir að maður ók vörubíl inn á jólamarkað í Berlín í gærkvöldi. Þetta vitum við um árásina.

  • Vörubíl var ekið á mikilli ferð inn á jólamarkað við Breitscheidplatz, nærri kirkjunni Gedächtniskirche í Charlottenburg í Berlín klukkan 20:30 að staðartíma í gærkvöldi.
  • Vörubílnum var ekið 50 til 80 metra áður en hann stansaði skammt frá stóra jólatrénu á markaðssvæðinu.
  • Í fyrstu var óljóst hvort að um óhapp hefði verið að ræða en upp úr klukkan 21 greindi lögregla frá því að að öllum líkindum væri um skipulagða árás að ræða.
  • Tveir menn voru í vörubílnum og lagði annar þeirra á flótta eftir að að vörubíllinn nam staðar. Annar lagði á flótta inn í nálægan garð, Tiergarten, en var handtekinn um tveimur kílómetrum frá jólamarkaðnum. Sjónarvottar sem elt höfðu manninn aðstoðuðu lögreglu við að hafa uppi á manninum.
  • Maðurinn, sem Die Welt kallar Naved B, ku vera 23 ára Pakistani sem kom til Þýskalands sem flóttamaður í febrúar síðastliðinn. RBB greinir frá því að hann á að hafa komið til landamærabæjarins Passau í Bæjaralandi í desember í fyrra. Yfirheyrslur yfirmanninum standa nú yfir.
  • Hinn maðurinn sem fannst í vörubílnum var úrskurðaður látinn á staðnum.  Hann var pólskur ríkisborgari. Vangaveltur eru uppi um að maðurinn sem ók bílnum inn á markaðinn hafi áður drepið manninn til að komast yfir vörubílinn. Pólska stöðin TVN24 segir að pólski ríkisborgarinn hafi verið 37 ára. 
  • Vörubíllinn sem notaður var í árásinni er skráður í Póllandi. Eigandi vörubílsins segist hafa leigt frænda sínum bílinn, en segir útilokað að sá hafi átt nokkurn þátt í árásinni. Hann segir jafnframt að GPS-upplýsingar úr bílnum bendi til að honum hafi verið stolið um klukkan 16 í gærdag.
Vísir/aFP
  • Um tvö hundruð lögreglumenn gerðu húsleit í flugskýli á gamla Tempelhof-flugvellinum í morgun þar sem árásarmaðurinn á að hafa dvalið. Fjórir menn voru yfirheyrðir vegna málsins en enginn handtekinn. Um tvö þúsund flóttamenn dvelja í skýlum á Tempelhof-flugvelli.
  • Innanríkisráðherra Frakklands ákvað eftir að fréttir bárust um árásina að öryggisgæsla og eftirlit við jólamarkaði í landinu skyldi efld.
Vísir/AFP
  • Lögregla í Þýskalandi hefur biðlað til almennings að dreifa ekki myndum eða myndskeiðum af jólamarkaðnum af virðingu við fórnarlömbin. Þó eru menn hvattir til að koma myndum sem náðust af atburðinum til lögreglu.
  • Þýski innanríkisráðherrann Thomas de Maiziere hefur hvatt Þjóðverja til að flagga í hálfa stöng í dag.
  • Ekki er vitað til þess að Íslendingar hafi lent í árásinni en utanríkisráðuneytið hvetur alla Íslendinga í Berlín sem ekki hafa látið vita af sér, að gera það svo fljótt sem auðið er.

Tengdar fréttir

Hryllingur á jólamarkaði í Berlín

Minnst níu létust þegar flutningabíll ók á hóp fólks á jólamarkaði í Berlín í gær. Íslendingar í borginni segja fólk í sjokki vegna atviksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×