Golf

Þetta þarf Ólafía Þórunn að gera til að komast inn á LPGA

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Mynd/LET/Tristan Jones
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, á möguleika á því að halda áfram að skrifa íslensku golfsöguna þegar hún keppir á lokaúrtökumótinu fyrir sterkustu atvinnumótaröð kvenna, LPGA mótaröðina.

Golfsamband Íslands hefur sett fram á mjög skýran og aðgengilegan hátt hvað Ólafía Þórunn þarf að gera til að komast inn á LPGA mótaröðina, fyrst íslenskra kylfinga. Hún er þegar komin lengra en nokkur önnur.

Ólafía Þórunn þarf að enda í hópi 20 efstu eftir fimmta keppnisdaginn til þess að öðlast keppnisrétt á LPGA mótaröðinni. Í fyrra voru þrír kylfingar jafnir á -4 samtals eftir 90 holur í 19.-21. sæti og léku þær í bráðabana um sæti nr. 19. og 20. Sú sem varð í 21. sæti sat eftir með sárt ennið. Alls komast 70 efstu kylfingarnir í gegnum niðurskurðinn eftir fjórða keppnisdaginn.

Það eru 158 kylfingar sem taka þátt og aðeins 20 efstu fá keppnisrétt á LPGA mótaröðinni. Þriðja stigið (lokaúrtökumótið) hefst miðvikudaginn 30. nóvember og lokakeppnisdagurinn fer fram sunnudaginn 4. desember. Leikið á LPGA International golfsvæðinu við Daytona Beach, Flórída. Keppnisvellirnir eru tveir og heita þeir Hills og Jones.

Lokahringurinn eða sá fimmti verður leikinn á Hills vellinum. Allir keppendur verða að hafa aðstoðarmann með á vellinum og verður Kristinn Jósep Kristinsson bróðir Ólafíu með henni sem kylfuberi. Bannað er að nota rafmagnskerrur. Ólafía getur með góðum árangri bætt stöðu sína á styrkleikalista Symetra mótaraðarinnar.

Ólafía endaði í fimmta sæti á 1. stiginu sem fram fór í lok ágúst. Þar var keppt á þremur keppnisvöllum. Mission Hills í Kaliforníu, Rancho Mirage,(Palmer og Dinah Shore); Westin Mission Hills (Gary Player). Ólafía endaði í 5. sæti á -7 samtals (68-71-70-72) 281 högg.

Annað stigið var spilað á Plantation Golf og Country Club í Venice í Flórída, (Bobcat og Panther völlunum) í lok október. Ólafía endaði í 12. sæti á parinu samtals 288 högg (72-73-71-72).

Hún hefur þegar með árangri sínum á 2. stiginu tryggt sér keppnisrétt á Symetra mótaröðinni sem er næst sterkasta mótaröðin í Bandaríkjunum. Er samskonar mótaröð og LET Access mótaröð í Evrópu en er jafnvel á styrkleika við sjálfa LET Evrópumótaröðina.

Alla samantekt GSÍ á golf.is má finna með því að smella hér en þar eru frekari upplýsingar en hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir

Umhverfis hnöttinn á 48 dögum

Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur verið á ferðinni um heiminn á síðustu sex vikum og þegar hún lendir í Orlando í Bandaríkjunum 21. nóvember næstkomandi hefur farið einn hring í kringum hnöttinn á aðeins tæpum

Ólafía Þórunn missti aðeins hausinn á „skrímslinu“ á Indlandi

Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur tókst ekki að bæta stöðu sína um helgina í baráttu sinni fyrir áframhaldandi þátttökurétti á Evrópumótaröðinni í golfi. Ólafía náði ekki niðurskurðinum á Hero Women's Indian Open mótinu en hún spilaði á 11 höggum yfir pari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×