Handbolti

Þetta sagði Guðmundur við dönsku strákana fyrir sigurinn á Frökkum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðmundur Guðmundsson fagnar í leikslok.
Guðmundur Guðmundsson fagnar í leikslok. Vísir/Anton
Guðmundur Guðmundsson gerði Dani að Ólympíumeisturum í kvöld eftir sigur á Frökkum í úrslitaleik á Ólympíuleikunum í Ríó.

Guðmundur ákvað að breyta út frá venju sinni og undirbúa lið sitt öðruvísi fyrir gullleikinn og það gekk upp. Guðmundur fór yfir þennan sérstaka undirbúning sinn í viðtali við Vísi eftir verðlaunaafhendinguna í kvöld.

„Ég er búinn að tala mikið við leikmennina og við horfðum ekki svo mikið á myndbönd núna. Ég er búinn að tala mjög mikið á þeim nótum að við erum að fara í leikinn til þess að vinna hann. Við erum ekki að fara þarna til að gera neitt annað og við getum það," sagði Guðmundur.

„Ég er búinn að tala mjög mikið um þetta og að nota tækifærið því tækifærið er núna. Það er ekki eftir fjögur ár eða í næstu stórkeppni. Tækifærið er núna, við ætlum að taka það og fara alla leið," sagði Guðmundur og hélt áfram:

„Ég sagði við þá stuttu áður en við fórum inn á völlinn: Þetta verður stórkostlegur dagur fyrir okkur. Svo sagði ég líka við þá að vinna Ólympíugull það getur breytt lífi manna á jákvæðan hátt. Ég er búinn að tala á þessum nótum og að við viljum skapa nýja sögu hérna fyrir Danmörk," sagði Guðmundur en hann segist hafa nýtt vel reynslu sína frá 2008 þegar hann tapaði úrslitaleik Ólympíuleikanna með íslenska landsliðinu.

„Á síðasta fundi þá töluðum við bara saman um þetta. Við vorum ekki að horfa á vídeó sem er óvenjulegt. Ég breytti áherslunum hvað þetta varðar og fékk þá til þess að trúa á það að þetta væri mögulegt," sagði Guðmundur.

Hann skipti markverði sínum út og notaði aukmanninn í sókninni í byrjun leiks. Sóknarleikurinn fór því vel af stað en Frakkar skoruðu reyndar þrisvar í tómt markið.

„Hluti af þessum sem var mjög mikilvægt var að byrja leikinn. Við vorum með ákveðinn hroka að byrja leikinn sjö á móti sex. Það er erfitt að byrja svona leik og við skorum mörk í byrjun. Þetta hefur kosti og galla en það sló okkur ekkert útaf laginu því við komum inn í þetta öðruvísi," sagði Guðmundur.

„Mér fannst þetta gefa tóninn og þetta snérist svolítið um það.Við vorum líka alveg tilbúnir að bakka út úr þessu og spila okkar leik. Við gerðum það líka," sagði Guðmundur.


Tengdar fréttir

Guðmundur: Nú er það gull

Guðmundur Guðmundsson er kominn með danska handboltalandsliðið alla leið í úrslitaleikinn á Ólympíuleikunum í Ríó en liðið spilar um gullið við Frakka í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×