Fótbolti

Þetta gerðist þegar Tyrkir komu síðast í heimsókn | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Tvö ár og einn mánuður eru liðin frá því Ísland og Tyrkland mættust síðast á Laugardalsvellinum.

Það var í fyrsta leiknum í undankeppni EM 2016 en íslensku strákarnir hófu ferðalagið ótrúlega á EM með 3-0 sigri á Tyrkjum.

Íslenska liðið byrjaði leikinn af miklum krafti og á 14. mínútu skallaði Jón Daði Böðvarsson boltann í slá tyrkneska marksins eftir fyrirgjöf Ara Freys Skúlasonar frá vinstri.

Jón Daði var nokkuð óvænt í byrjunarliðinu og hann þakkaði traustið með sínu fyrsta landsliðsmarki á 18. mínútu. Selfyssingurinn skallaði þá hornspyrnu Gylfa Þórs Sigurðssonar í netið.

„Það var frábær tilfinning að skora og það er ólýsanlegt að skora í sínum fyrsta keppnisleik,“ sagði Jón Daði í samtali við Vísi eftir leikinn sem var aðeins hans fjórði fyrir A-landsliðið.

Jón Daði Böðvarsson horfir á eftir boltanum í markið.vísir/anton
Kolbeinn Sigþórsson og Birkir Bjarnason fengu tækifæri til að auka forskotið í fyrri hálfleik sem ekki nýttust. Ísland leiddi 1-0 í hálfleik og á 59. mínútu vænkaðist hagur íslenska liðsins enn frekar þegar Ömer Toprak fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt fyrir að handleika boltann.

Kolbeinn fékk dauðafæri upp úr aukaspyrnunni en Onur Kivrak varði skalla hans af stuttu færi. Á 69. mínútu fékk Burak Yilmaz besta færi Tyrkja en skaut yfir.

Annað markið leit svo dagsins ljós á 75. mínútu þegar Gylfi Þór, besti maður vallarins, skoraði með góðu skoti frá vítateigsboganum.

Aðeins tveimur mínútum síðar negldi Kolbeinn síðasta naglann í kistu Tyrkjanna þegar hann skoraði með góðu skoti hægra megin í teignum eftir frábæra sendingu Ara Freys.

„Þeir virtust ekki vera með neit plan b og breyttu ekkert leikskipulaginu sínu, þó það sé kjánalegt að segja það. Þetta var frekar þægilegur leikur fyrir okkur, þó það sé fáránlegt að segja þetta. Við þurftum ekkert að breyta okkar skipulagi,“ sagði Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, á blaðamannafundi eftir sigurinn sem gaf íslenska liðinu byr undir báða vængi fyrir framhaldið í undankeppninni.

Ari Freyr Skúlason og Kolbeinn Sigþórsson áttu heiðurinn að þriðja markinu.vísir/anton
Ísland og Tyrkland mætast í kvöld í undankeppni HM 2018. Íslendingar eru með fjögur stig í I-riðli og geta með sigri komið sér í góða stöðu fyrir framhaldið.

Leikurinn í kvöld er sá tíundi milli Íslands og Tyrklands. Íslendingar hafa yfirhöndina í innbyrðis viðureignum liðanna, hafa unnið fimm leiki, gert tvö jafntefli og aðeins tapað tveimur leikjum.

Tyrkir hafa aðeins náð í eitt stig í fimm heimsóknum sínum á Laugardalsvöllinn. Fyrir utan leikinn fyrir tveimur árum er frægasti leikur Íslendinga og Tyrkja sennilega vináttulandsleikur 17. júlí 1991 þar sem Arnór Guðjohnsen skoraði fjögur mörk í 5-1 sigri Íslands.

Arnór Guðjohnsen skoraði fernu í sigri Íslands á Tyrklandi fyrir 25 árum.vísir/brynjar gauti
Leikir Íslands og Tyrklands:

Tyrkland 1-3 Ísland, 24. september 1980

Janus Guðlaugsson, Albert Guðmundsson, Teitur Þórðarson

Ísland 2-0 Tyrkland, 9. september 1981


Lárus Guðmundsson, Atli Eðvaldsson

Tyrkland 1-1 Ísland, 12. október 1988

Guðmundur Torfason

Ísland 2-1 Tyrkland, 20. september 1989

Pétur Pétursson 2

Ísland 5-1 Tyrkland, 17. júlí 1991

Arnór Guðjohnsen 4, Sigurður Grétarsson

Tyrkland 5-0 Ísland, 12. október 1994

Ísland 0-0 Tyrkland, 10. október 1995

Ísland 3-0 Tyrkland, 9. september 2014

Jón Daði Böðvarsson, Gylfi Þór Sigurðsson, Kolbeinn Sigþórsson

Tyrkland 1-0 Ísland, 13. október 2015




Fleiri fréttir

Sjá meira


×