Fótbolti

Þetta eru liðin tólf sem hafa tryggt sig áfram í Meistaradeildinni | Sjáðu öll mörkin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Antoine Griezmann og Tiago hjá Atlético Madrid fagna í gær.
Antoine Griezmann og Tiago hjá Atlético Madrid fagna í gær. Vísir/Getty
Tólf félög geta farið að undirbúa sig fyrir sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar í febrúar og mars á næsta ári

Það eru nefnilega bara fjögur laus sæti eftir í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar nú þegar liðin eiga aðeins eftir að spila einn leik í riðlakeppninni.

Fjögur af liðunum tólf sem eru komin áfram hafa einnig tryggt sér efsta sætið í sínum riðli.

Barcelona tryggði sér sigur í sínum riðli með 2-0 sigri á Celtic í Glasgow. Leikmenn Barcelona vilja þó örugglega sleppa við þýska liðið Bayern München í sextán liða úrslitunum. Bayern er komið áfram en getur ekki náð fyrsta sætinu af Atlético Madrid.

Auk Barcelkna og Atlético Madrid þá hafa Mónakó og Leicester City öll tryggt sér efsta sætið í sínum riðli.

Lið eru komin áfram úr öllum riðlum nema B-riðlinum þar sem spennan er mikil fyrir lokaumferðina. Napoli og Benfica eru bæði með átta stig en Besiktas er aðeins stigi á eftir. Benfica tekur á móti Napoli í lokaumferðinni þannig að Besiktas ætti að nægja sigur á Dynamo Kiev.

Porto og FC Kaupmannahöfn berjast síðan um annað sætið á eftir Leicester City í G-riðlinum. Porto er með tveimur stigum meira og tekur á móti toppliði Leicester í lokaumferðinni á sama tíma og FC Kaupmannahöfn heimsækir Club Brugge.

Juventus er komið afram í H-riðli en þó ekki öruggt með sigurinn í riðlinum. Juve er með 11 stig eða einu meira en Sevilla og fjórum meira en Lyon. Lyon tekur á móti Sevilla í hreinum úrslitaleik í lokaumferðinni.



Liðin sem eru komin í 16 liða úrslitin fyrir lokaumferðina:

A-riðill

Paris Saint-Germain

Arsenal

B-riðill

Þrjú lið eiga enn möguleika (Napoli, Benfica og Besiktas)

C-riðill

Barcelona (öruggt með 1. sæti)

Manchester City (verður alltaf í 2. sæti)

D-riðill

Atlético Madrid (1. sæti)

Bayern München (2. sæti)

E-riðill

Mónakó (1. sæti)

Bayer Leverkusen (2. sæti)

F-riðill

Borussia Dortmund

Real Madrid

G-riðill

Leicester (1. sæti)

Tvö berjast um annað sætið (Porto og FC Kaupmannahöfn)

H-riðill

Juventus

Tvö berjast um hitt sætið (Sevilla og Lyon)



Hér fyrir neðan má sjá öll mörkin úr leikjum gærkvöldsins í Meistaradeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×