Fótbolti

Þetta eru leikmennirnir sem Lars og Heimir völdu fyrir leikinn gegn Hollandi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jón Daði Böðvarsson og Kolbeinn Sigþórsson fagna marki þess síðarnefnda gegn Tékkum á Laugardalsvelli í júní.
Jón Daði Böðvarsson og Kolbeinn Sigþórsson fagna marki þess síðarnefnda gegn Tékkum á Laugardalsvelli í júní. Vísir/Ernir
Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck, þjálfarar karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu, tilkynntu í dag hópinn sem mætir Hollandi og Kasakstan í undankeppni Evrópumótsins 2016. Engin breyting er á hópnum frá því í 2-1 sigurleiknum gegn Tékkum á Laugardalsvelli í júní.

Okkar menn koma saman í Hollandi seint á sunnudag og mánudag en fyrsta æfing verður í Amsterdam síðdegis á mánudaginn. Leikurinn gegn Hollandi fer svo fram á Amsterdam Arena fimmtudagskvöldið 3. september. Hópurinn heldur svo til Íslands þar sem Kasakstan verður andstæðingurinn á Laugardalsvelli sunnudaginn 6. september.

Eiður Smári Guðjohnsen, markahæsti leikmaður landsliðsins frá upphafi með 25 mörk, er á sínum stað í hópnum. Hann er einnig leikjahæstur þeirra sem skipa hópinn með 79 landsleiki. 

Hópurinn er þannig skipaður

Markverðir:

Ögmund­ur Krist­ins­son - Hammarby

Hann­es Þór Hall­dórs­son - NEC Nijmegen

Gunn­leif­ur Gunn­leifs­son - Breiðabliki

Varn­ar­menn:

Ari Freyr Skúla­son - OB

Krist­inn Jóns­son - Breiðabliki

Sölvi Geir Ottesen - Jiangsu Sainty

Ragn­ar Sig­urðsson - Krasnod­ar

Hall­grím­ur Jónas­son - OB

Kári Árna­son - Malmö

Birk­ir Már Sæv­ars­son - Hamm­ar­by

Theó­dór Elm­ar Bjarna­son - AGF

Miðju­menn:

Eiður Smári Guðjohnsen -Shijiazhuang Ever Bright

Aron Ein­ar Gunn­ars­son - Car­diff

Emil Hall­freðsson - Hellas Verona

Birk­ir Bjarna­son - Basel

Jó­hann Berg Guðmunds­son - Charlt­on

Rúrik Gísla­son -
FC Nürnberg

Gylfi Þór Sig­urðsson - Sw­an­sea

Rún­ar Már Sig­ur­jóns­son - Sundsvall

Fram­herj­ar:

Kol­beinn Sigþórs­son - Nantes

Al­freð Finn­boga­son - Olympiacos

Jón Daði Böðvars­son - Vik­ing

Viðar Örn Kjart­ans­son - Jiangsu Sainty





Fleiri fréttir

Sjá meira


×