Bíó og sjónvarp

Þetta eru kvikmyndirnar sem keppa um Gullpálmann í Cannes

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Nicole Kidman veifar hér til gesta á Cannes ásamt Sofia Coppola og meðleikurum sínum í The Beguiled. Kidman leikur alls í fjórum myndum sem sýndar eru á hátíðinni.
Nicole Kidman veifar hér til gesta á Cannes ásamt Sofia Coppola og meðleikurum sínum í The Beguiled. Kidman leikur alls í fjórum myndum sem sýndar eru á hátíðinni. vísir/getty
Kvikmyndahátíðin í Cannes stendur nú sem hæst og verður hinn eftirsótti Gullpálmi afhentur við hátíðlega athöfn á sunnudaginn. Alls keppa 19 kvikmyndir um pálmann og er kvikmyndin Happy End talin líklegust til að vinna ef marka má veðbankana.

Það er Austurríkismaðurinn Michael Haneke sem leikstýrir Happy End en hann hefur tvisvar áður hlotið Gullpálmann, annar vegar árið 2009 fyrir The White Ribbon og hins vegar árið 2012 fyrir Amour.

Happy End er dramamynd með Isabelle Huppert í aðalhlutverki og gerist í frönsku borginni Calais sem hefur verið einn af miðpunktum flóttamannavandans í Evrópu undanfarin misseri.

Hér neðar má sjá stiklu fyrir myndina og svo stiklur fyrir aðrar myndir sem keppa um verðlaunin eftirsóttu á frönsku rívíerunni um helgina. Á meðal leikstjóra sem eiga myndir á hátíðinni eru þau Sofia Coppola, Todd Haynes, Lynne Ramsay og Michel Hazanavicius.

The Beguiled eftir Sofia Coppola

Nicole Kidman og Colin Farrell fara með aðalhlutverk í þessari mynd sem er byggð á bók Thomas Cullinan frá árinu 1966. Myndin fjallar um hermann norðanmanna í þrælastríðinu sem fær aðhlynningu í stúlknaskóla í Suðurríkjunum.

You Were Never Really Here eftir Lynne Ramsay

Joaquin Phoenix og Alessandro Nivola fara með aðalhlutverkin í mynd sem byggð er á bók Jonathan Armes. Sagan segir af uppgjafarhermanni sem reynir að bjarga ungri stúlku úr kynlífsþrælkun með skelfilegum afleiðingum.

 

Wonderstruck eftir Todd Haynes

Myndin er byggð á bók Brian Selznick en með aðalhlutverk fara þær Julianne Moore og Michelle Williams. Saga ungs drengs í miðvesturríkjunum er sögð á sama tíma og saga ungrar stúlku í New York 50 árum fyrr en þau eru bæði leitandi að einhverjum dularfullum tengslum.

Good Time eftir Benny og Josh Safdie

Jennifer Jason Leigh, Barkhad Abdi og Robert Pattinson leika í þessari mynd Safdie-bræðranna sem fjallar um bankaræningja sem á erfitt með að komast undan þeim sem leita hans.

The Meyerowitz Stories eftir Noah Baumbach

Það er stórskotalið leikara sem í mynd Baumback sem skartar þeim Adam Sandler, Ben Stiller, Dustin Hoffman og Emma Thompson meðal annars í aðalhlutverkum. Myndin fjallar um systkinahóp og samband þeirra við föður sinn. Myndin er ein af þeim fyrstu sem Netflix frumsýnir á Cannes.

In the Fade eftir Fatih Akin

Diane Kruger leikur hér í sinni fyrstu mynd á þýsku en hún er fædd og uppalin í Þýskalandi. Myndin segir frá Katja en líf hennar hrynur þegar eiginmaður hennar og sonur láta lífið í sprengjuárás. Þegar tími sorgar og óréttlætis er liðinn kemur tími hefndarinnar.

Okja eftir Bong Joon-Ho

Þessi ævintýramynd sem er með vísindaskáldsögulegu ívafi fjallar um stúlku sem gerir allt til þess að koma í veg fyrir að fyrirtæki læsi klóm sínum í vin hennar sem er mjög hárugt skrímsli. Með aðalhlutverk fara þau Tilda Swinton, Jake Gyllenhaal, Lily Collins og Paul Dano. Netflix framleiðir myndina.

The Killing of a Sacred Deer eftir Yorgos Lanthimos

Colin Farrell og Nicole Kidman er hér aftur á ferð ásamt þeim Alicia Silverstone og Bill Camp í sálfræðitrylli sem fjallar um skurðlækni sem reynir að taka ungling inn í fjölskylduna. Þetta er ein af fjórum myndum Kidman á hátíðinni.

The Double Lover eftir Francois Ozon

Þau Jaqueline Bisset, Marine Vacth og Jeremie Renier fara með aðalhlutverkin í spennutrylli sem segir frá ungri konu sem fellur fyrir sálgreininum sínum. Eftir að þau flytja hins vegar inn saman kemst hún að því að hann hefur hana leynt hana ýmsu.

A Gentle Creature eftir Sergey Loznitsa

Myndin er byggð að nokkru leyti á smásögu Dostoyevsky um konu sem fær sendan pakka sem hún sendi eiginmanni sínum sem situr í fangelsi. Ringluð og í sjokki fer hún í einangrað fangelsið í leit að réttlæti.

Redoubtable eftir Michel Hazanavicius

Þessi sjálfsævisögulega mynd eftir leikstjóra The Artist fjallar um franskan kivkmyndaleikstjóra sem verður yfir sig ástfanginn af 17 ára leikkonu á meðan hann er að taka upp mynd.

Loveless eftir Andrei Zyvagintsev

Þessi dramamynd Rússans Zyvaginstev fjallar um par sem stendur í skilnaði en þarf þó að standa saman þar sem sonur þeirra hverfur þegar þau eiga í enn einu rifrildinu.

Radiance eftir Naomi Kawase

Japanska dramamyndin Radiance segir frá Misako, blindri konu sem vinnur við að skrifa texta fyrir kvikmyndir fyrir blinda. Hún hittir Masaya, eldri ljósmyndara sem er smám saman að missa sjónina, en saman læra þau að sjá heiminn.

The Day After eftir Hong Sangsoo

Þessi kóreska mynd fjallar um konu sem eiginkona yfirmanns hennar heldur að sé fyrrverandi ástkona mannsins.

120 Battements Par Minute eftir Robin Campillo

Myndin fjallar um franska aktívista í París á 10. áratugnum sem berjast fyrir því að finna lækningu við óþekktum banvænum sjúkdómi.

Rodin eftir Jaques Doillon

Vincent Lindon leikur franska myndhöggvarann Auguste Rodin í þessari mynd um ævi listamannsins sem römmuð er inn af sambandi hans við lífsförunaut sinn, Rose Beuret, og myndhöggvarann Camille Claudel.

The Square eftir Ruben Ostlund

Myndin fjallar um Christian, virtan sýningarstjóra á nýlistasafni, en nýjasta sýningin sem hann setur upp veldur miklu fjaðrafoki og sýningarstjórinn fer í hálfgerða tilvistarkreppu.

Jupiter‘s Moon eftir Kornel Mandruczo

Þessi mynd fjallar um ungan innflytjanda sem skotinn er á þar sem hann er að fara ólöglega yfir landamæri Ungverjalands. Særður og í áfalli kemst hann að því að hann getur svifið upp eins og hann lystir á einhvern dularfullan hátt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×