Lífið

Þetta eru bestu lög kvöldsins að mati sérfræðinga Eurovísis

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Eurovísir fékk til liðs við sig þrjá sérfræðinga í Eurovision úr Félagi áhugafólks um Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva til að fara yfir lögin sem keppa í Eurovision í kvöld. Þau Steinunn Björk Bragadóttir, Heiður Maríudóttir og Charles Gittins fóru yfir lögin og gáfu þeirra sérfræðiálit.

Við tókum saman það sem hæst bar en hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér að ofan.

Noregur


„Mér finnst þetta frábært lag,“ segir Steinunn og Heiður tekur undir. Charles er ekki alveg jafnhrifinn. „Þetta er ekki La det svinge, sem er það sem ég vil fá frá Noregi. Þetta er smá niðurdrepandi og dapurlegt,“ segir hann. „Ég vil ekki raunveruleikann í Eurovision.“ Hann er þó sammála um gæði lagsins. "Þetta kemst áfram pottþétt."

Litháen

„Það yrðu mjög leiðinleg úrslit án þessa lags,“ segir Charles. Steinunn segir að flytjendurnir virki vel saman á sviðinu; þau virki raunverulega ástfangin. „Ég held að þetta sé frábært opnunarlag,“ segir Heiður.

Ísrael

„Þetta er frábært lag,“ segir Charles. Heiður segir að lagið sé í miklu uppáhaldi hjá sér en öll þrjú eru sammála um að lagið sé mjög gott. „Ef þetta lag væri ekki númer níu í röðinni þá væri fólk í alvöru bara farið og búið að slökkva á þessu, þannig að hann bjargar öllu sjóvinu þarna,“ segir hún. Steinunn segir hann svo vera ísraelsku útgáfuna af Friðriki Dór. „Og það er ekkert slæmt við það,“ segir hún.

Svíþjóð

„Hann flýgur áfram og verður örugglega í topp fimm,“ segir Charles. Steinunn telur þó of stutt síðan Svíar unnu síðast keppnina til að þeir vinni aftur. Hún sé þó viss um að sænska lagið verði ofarlega í úrslitunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×