Glamour

Þetta er mest seldi maskarinn í heiminum í dag

Ritstjórn skrifar
Maskari skiptir hvað mestu máli við val á förðunarvörum.
Maskari skiptir hvað mestu máli við val á förðunarvörum. Mynd/Getty
Leitin að hinum fullkomna maskara getur tekið mörg ár eða áratugi hjá sumum. Þrátt fyrir að allir séu með mismunandi augnhár þá leita flestir af sömu eiginleikunum. Maskari sem lengir augnhárin, greiðir úr þeim og lætur þau líta út fyrir að vera þykkari. Svo má hann auðvitað ekki smitast, hann þarf að haldast vel á og það þarf að vera hægt að bæta eins mikið og maður vill við hann. 

Mest seldi maskarinn í heiminum á þessari stundu er frá Too Faced og heitir Better Than Sex. Hann er sagður þykkja og lengja augnhárin einstaklega vel sem og að hann er vel svartur. Maskarinn er sagður gefa manni augnhár eins og Marilyn Monroe. 

Þeir sem eru enn að leita sér að góðum maskara ættu því að prufa Better Than Sex.

Cross our hearts, it doesn't get better than this. #betterthansex #toofaced #regram @iamcharmaynex

A photo posted by Too Faced Cosmetics (@toofaced) on






×