Skoðun

Þetta er hægt

Una Steinsdóttir skrifar
Eitt stærsta hagsmunamál fyrir heimilin í landinu sem og hagkerfið í heild sinni er skilvirkur og aðgengilegur húsnæðismarkaður.

Síðastliðið haust gaf Greining Íslandsbanka út ítarlega skýrslu um íslenska íbúðamarkaðinn, þar sem m.a. kom fram að allar líkur væru á því að samhliða aukinni veltu héldi húsnæðisverð áfram að hækka næstu árin. Fyrstu mánuðir þessa árs gefa ekki annað til kynna en að þessi staða hafi verið rétt metin.

Mikil umræða hefur átt sér stað um stöðu fyrstu kaupenda á húsnæðismarkaðnum og hefur þjónusta Íslandsbanka þróast hratt til að mæta þörfum þeirra. Fyrir nokkrum árum voru húsnæðissparnaðarreikningar settir á laggirnar og mögulegt er að fá aukalán vegna fyrstu íbúðarkaupa. Það lán var nýlega hækkað upp í tvær milljónir króna og sem dæmi er hámarks lánshlutfall á 30 milljóna kr. íbúð, 87% af kaupverði.

Það er því sérlega ánægjulegt að sjá að hlutdeild fyrstu kaupenda hefur farið vaxandi, úr því að mælast rétt ríflega 10% þinglýstra kaupsamninga á árinu 2011 í tæplega fjórðung á árinu 2015 samkvæmt gögnum Hagstofunnar. Þar skiptir líka máli það úrræði stjórnvalda að heimila kaupendum fyrstu íbúðar að nýta séreignarsparnað skattfrjálst til að kljúfa útborgun í fyrstu eign eða greiða inn á höfuðstól húsnæðisláns. Til að styðja enn betur við fyrstu kaupendur hefur lántökugjald Íslandsbanka fyrir fyrstu kaupendur verið fellt niður.

Sú áskorun sem flest íslensk þjónustufyrirtæki standa frammi fyrir er að mæta auknum kröfum um upplýsingagjöf og sjálfsafgreiðslu á netinu sem eykur skilvirkni fyrir alla aðila. Nú býður Íslandsbanki upp á þann möguleika að sækja um netgreiðslumat undirritað með rafrænum skilríkjum sem mun spara viðskiptavinum sporin. Þetta er hluti af þeirri stafrænu vegferð sem bankinn er í og það hefur sýnt sig með nýju greiðslumiðlunarappi Kass, sem og Íslandsbanka appinu, að sífellt fleiri vilja afgreiða bankaviðskipti sín hvar og hvenær sem er, og í raun hafa bankann í vasanum. Þróuninni mun fleygja hratt fram og má nefna að á næstu misserum er stefnt að því að gera þinglýsingar rafrænar og verður húsnæðislánaferlið því enn einfaldara og þægilegra fyrir viðskiptavininn.

Þessum nýjungum munu viðskiptavinir ekki eingöngu finna fyrir í bættri þjónustu heldur einnig í hagstæðari lánskjörum.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×