Lífið

Þetta er ekki typpið mitt

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
mynd/tmz
Nektarmynd af Kevin Federline, fyrrverandi eiginmanni Britney Spears, sem gengið hefur á internetinu hefur vakið talsverða athygli en á myndinni sést það sem margir hafa haldið fram vera getnaðarlimur Kevins. 

Samkvæmt fréttasíðunni TMZ er myndin ekki af djásnum Kevins og segja heimildarmenn síðunnar að myndin sé fótósjoppuð. Segja heimildarmennirnir að húðflúr sem Kevin sé með sjáist ekki á myndinni og segja að hann sjálfur segi að getnaðarlimur hans sé talsvert stærri en sá sem sést á myndinni.

TMZ hefur ekki náð í Kevin til að tjá sig um málið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×