Lífið

Þetta er best skreytta hús landsins

Stefán Árni Pálsson skrifar
Virkilega fallegt hús á Selfossi.
Virkilega fallegt hús á Selfossi. vísir/Guðbjörg
„Þetta er alltaf smá viðburður hjá okkur í nóvember og við tökum frá eina helgi og skreytum húsið,“ segir Sólveig Ósk Hallgrímsdóttir, hársnyrtimeistari, sem á best skreytta hús landsins að mati dómnefndar Vísis.

Í síðustu viku fór Lífið á Vísi í gang með leik þar sem lesendur áttu að senda inn myndir af vel skreyttum húsum um land allt. Töluverður fjöldi af myndum barst en húsið við Austurveg á Selfossi stóð uppi sem sigurvegarinn.

„Þetta tekur ekkert það langan tíma og við vinnum þetta mjög hnitmiðað.“ Mikill fjöldi sendi inn myndir af umræddu húsi á Selfossi og segir Sólveig að töluverð traffík sé við húsið í desember.

„Við leggjum mjög mikið upp úr því að skeyta húsið ekkert brjálæðislega mikið og viljum hafa það smekklegt. Við viljum alls ekki að það sé eins og í Christmas Vacation myndinni.“

Í verðlaun fá þau hjónin 25 þúsund króna gjafabréf í Húsasmiðjunni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×