Lífið

Þetta barn hlær eins og það ætli sér að taka yfir heiminn

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Hláturinn er afar krúttlegur.
Hláturinn er afar krúttlegur. Mynd/Skjáskot
Það kannast ef til vill flestir við vondu kallanna í bíómyndunum sem ætla sér að taka yfir heiminn. Oftar en ekki fylgir þeim ansi sérstakur hlátur sem fáir gerðu jafn mikið grín að og Mike Myers sem Dr.Evil í myndunum um Austin Powers.

Stolt foreldri setti nýverið inn myndband á YouTube undir yfirskriftinni „Ég er að ala barnið mitt upp sem illan snilling.“ Það virðist vera að takast vel upp því að barnið litla hlær nákvæmlega eins og illur snillingur sem ætlar sér að taka yfir heiminn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×