Körfubolti

Þessir þrír hafa aldrei tapað saman í úrslitakeppni NBA

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kevin Love, Kyrie Irving og LeBron James.
Kevin Love, Kyrie Irving og LeBron James. Vísir/Getty
LeBron James, Kyrie Irving og Kevin Love eru þrjár stærstu stjörnur Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni og  hafa nú tekið því rólega eftir að Cleveland-liðið komst langfyrst áfram í þriðju umferð úrslitakeppninnar í ár.

Cleveland Cavaliers sló bæði Detroit Pistons og Atlanta Hawks út úr úrslitakeppninni í ár án þess að tapa leik. Átta leikir og átta sigrar.

Staðan var 2-1 fyrir Toronto Raptors á móti Miami Heat í hinu undanúrslitaeinvígi Austurdeildarinnar þegar Cavaliers-liðið komst áfram. Toronto vann það einvígi á endanum í oddaleik (leik númer 7) og í kvöld er loksins komið að fyrsta leiknum hjá Cleveland Cavaliers og Toronto Raptors. Toronto Raptors er því búið að spila fjóra leiki síðan að Cleveland Cavaliers spilaði síðast.

Þríreykið, James, Irving og Love, státar af rosalegri tölfræði í úrslitakeppni NBA þessi tvö tímabil sem þeir hafa spilað saman.

Þessir þrír hafa nefnilega aldrei tapað í úrslitakeppni þegar allir eru með Cleveland Cavaliers. Átta leikir í úrslitakeppninni í ár bættust við þá fjóra sem þeir náðu að spila saman í fyrra.

Kevin Love meiddist í fjórða leik í úrslitakeppninni í fyrra þegar Cleveland Cavaliers var að landa fjórða sigrinum í röð á Boston Celtics og um leið sæti í annarri umferð úrslitakeppninnar.

LeBron James leiddi Cleveland-liðið alla leið í lokaúrslitin þrátt fyrir að vera án Kevin Love í undanúrslitum og úrslitum Austurdeildarinnar auk þess að missa Kyrie Irving út í tvo leiki í úrslitum Austurdeildarinnar og svo alveg út í fyrsta leik lokaúrslitanna á móti Golden State Warriors.

Nú eru allir þrír heilir og hungraðir og nú er það undir leikmönnum Toronto Raptors að breyta fyrrnefndri tölfræði. Það búast flestir við því að Cleveland slái Toronto út og ef marka má samspil þeirra James, Irving og Love hingað til er ekki ólíklegt að einvígið endi 4-0.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×